Hálfleiksræða Andy fór vel í Keflavíkurstelpurnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2014 20:53 Andy Johnston talar hér við sínar stelpur. Mynd/Daníel
Keflavíkurkonur sóttu tvö stig í Hveragerði í kvöld þegar liðið vann fjögurra stiga sigur á heimastúlkum í Hamar, 75-71. Keflavíkurliðið lagði grunninn að sigrinum með því að vinna þriðja leikhlutann 20-8.Bryndís Guðmundsdóttir átti mjög góðan leik með Keflavík en hún var með 18 stig og 22 fráköst í kvöld. Porsche Landry skoraði 23 stig og tvíburasysturnar, Sara Rún Hinriksdóttir (13 stig) og Bríet Hinriksdóttir (12 stig), voru einnig atkvæðamiklar.Di'Amber Johnson skoraði mest fyrir Hamar eða 26 stig. Hamar endurheimti Marínu Laufeyju Davíðsdóttur sem var með 13 stig og 10 fráköst í kvöld en Hamarsstúlkur urðu þrátt fyrir það að sætta sig við fimmta tapið í röð. Hamar komst í 16-9 og 18-13 í fyrsta leikhlutanum en var tveimur stigum yfir við lok hans, 21-19. Hamar var áfram skrefinu á undan í öðrum leikhlutanum. Hamar var 36-33 yfir þegar tvær mínútur voru hálfleiks en Keflavíkurkonur skoruðu fjögur síðustu stigin í öðrum leikhluta og leiddu 37-36 í leikhléi. Staðan var síðan 44-44 um miðjan þriðja leikhluta þegar Keflavíkurkonur gáfu í, skoruðu þrettán stig síðustu stigin í leikhlutanum og tóku völdin í leiknum. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði sex fyrstu stigin í sprettinum og Keflavík var 57-44 yfir fyrir lokaleikhlutann. Hálfleiksræða þjálfarans Andy Johnston fór því greinilega vel í hans stelpur. Hamarsliðið náði að minnka munninn í fjögur stig í lokin en Keflavíkurkonur héldu út og lönduðu mikilvægum sigri í baráttunni um heimavallarréttinn við Hauka. Bæði lið eru nú með 26 stig en Haukaliðið hefur betur í innbyrðisviðureignum þeirra.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira