Sport

Afturelding tapaði en varð deildarmeistari

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Afturelding með bikarinn eftir leikinn í gærkvöldi.
Afturelding með bikarinn eftir leikinn í gærkvöldi. Mynd/Halldór Karl Þórisson
Afturelding varð í gærkvöldi deildarmeistari í blaki kvenna þrátt fyrir tap gegn Þrótti Neskaupsstað að Varmá í Mosfellsbæ, 3-2.

Afturelding gat tryggt sér deildarmeistaratitilinn í leiknum en Þróttarar þurftu sigur til að eiga möguleika á því að tryggja sér heimaleikjarétt í úrslitakeppninni sem hefst í næstu viku.

Heimakonur unnu fyrstu hrinuna, 25-20, en í annarri hrinu þurfti uppspilari Aftureldingar að fara meidd af velli. Það kom ekki að sök því Mosfellingar unnu einnig aðra hrinu, 26-24.

Með því að vinna fyrstu tvær hrinurnar tryggði Afturelding sér eitt stig úr leiknum og var þar með öruggt um deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir að nóg væri eftir af leiknum.

Þróttarar komu hrikalega öflugir til baka og unnu næstu þrjár hrinur, 25-20, 28-26 og oddahrinuna, 17-15. Leikinn unnu gestirnir því 3-2.

Eftir þennan leik er staðan í deildinni þannig að Afturelding og HK eru jöfn að stigum með 35 stig en Afturelding er með mun betra vinningshlutfall í hrinum og á þar að auki eftir að spila við KA en sá leikur verður leikinn í dag.

Þróttur frá Neskaupsstað er í þriðja sæti með 32 stig en getur með sigri í dag á móti Stjörnunni tekið annað  sætið í deildinni af HK og jafnframt tryggt sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni á móti HK.

Stigahæstar í liði Aftureldingar í gærkvöld voru þær VelinaApostolova með 24 stig og Auður Anna Jónsdóttir með 20 stig. Hjá Þrótti voru stigahæstar JónaGuðlaugVigfúsdóttir með 33 stig og Erla Rán Eiríksdóttir með 17 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×