Fyrsta tap Heat | Spurs mundar sópinn Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 11. maí 2014 11:00 Tony Parker er óstöðvandi vísir/afp
Tveir leikir voru í nótt í úrslitakeppni NBA körfuboltans í Bandaríkjunum. San Antonio Spurs skellti Portland Trail Blazers 118-103 og Brooklyn Nets lagði Miami Heat 104-90. Þetta var fyrsta tap Heat í úrslitakeppninni í vor en liðið vann sex fyrstu leiki sína. Heat er 2-1 yfir í einvíginu en fjórði leikurinn verður í Brooklyn líkt og leikurinn í nótt. Frábær hitni Nets lagði grunninn að sigrinum í nótt en liðið hitti úr 15 af 25 þriggja stiga skotum sínum. Liðið barðist líka af krafti og tók 43 fráköst gegn 27 fráköstum Heat. Sex leikmenn Nets skoruðu 10 stig eða meira. Joe Johnson skoraði mest þeirra, 19 stig og Andray Blatche 15 af bekknum. LeBron James og Dwyane Wade voru í sérflokki hjá Heat. James skoraði 28 stig og tók 8 fráköst. Wade skoraði 20 stig og stal 3 boltnum. San Antonio Spus hefur ekki átt í vandræðum gegn Trail Blazers og er 3-0 yfir í einvíginu eftir öruggan sigur í nótt. Spurs var 20 stigum yfir í hálfleik í nótt og var leikurinn í raun aldrei spennandi. Trail Blazers ræður ekkert við Tony Parker í vörninni auk þess sem varamenn liðsins eru varla þátttakendur í rimmunni, þeir skoruðu alls sex stig í nótt. Tony Parker skoraði 29 stig í nótt og Tim Duncan 19 en fimm leikmenn skoruðu 10 stig eða meira. Fjórir byrjunarliðsmenn Trail Blazers skoruðu yfir 20 stig hver og sá fimmti 13 stig. Wesley Matthews skoraði 22 stig, Damian Lillard og LaMarcus Aldridge 21 stig hvor og Nicolas Batum 20 stig.
NBA Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Sektin hans Messi er leyndarmál Fótbolti Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Fótbolti Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Fótbolti Fleiri fréttir Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Sjá meira