Skoðun

Farsæl fjármálastjórn er góður grunnur

Almar Guðmundsson skrifar

Rekstur Garðabæjar hefur um langt árabil einkennst af traustri fjármálastjórn og lágum skuldum. Það hefur reynst mikilvæg undirstaða góðrar þjónustu við bæjarbúa og hefur jafnframt verið grundvöllur öruggrar og heilbrigðrar uppbyggingar í bænum. Það er staðfest í könnunum að bæjarbúar kunna að meta þjónustu bæjarins og eru ánægðir með stöðuna. Hófleg skuldastaða á þar stóran hlut að máli.

Það var því í sjálfu sér nokkuð fyrirsjáanlegt þegar sameining Garðabæjar og Álftaness var á teikniborðinu að ýmsir bæjarbúar hefðu áhyggjur af því að fjárhagsstaða bæjarins myndi versna til muna við sameininguna og langan tíma myndi taka að ná aftur fyrri styrk. Þetta var og er mjög skiljanlegt sjónarmið. Í því ljósi má segja að ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2013 hafi borið með sér ákaflega gleðileg tíðindi. Rekstur bæjarins gekk mjög vel.

Myndin sýnir skuldahlutfull (skuldir sem hlutfall af tekjum) miðað við forsendur greinargerðar R3 ráðgjafar í aðdraganda sameiningarkosninga annars vegar og miðað við rauntölur 2013 og uppreiknaðar áætlanir hins vegar. Hin góða niðurstaða ársins 2013 hefur þau áhrif að áætluð lækkun skulda kemur mun hraðar fram en áætlað var.

Afkoma var góð og sjóðstreymi mjög sterkt. Skuldahlutfall bæjarins er 98,5% og umtalsvert lægra en spár gerðu ráð fyrir í aðdraganda sameiningar sveitarfélaganna tveggja. Það þýðir að lækkun skulda kemur mun hraðar fram en áður hafði verið áætlað.

Hið mikilvægasta af öllu er að hröð lækkun skuldahlutfallsins er ekki sótt í minni þjónustu – útgjöld A hluta bæjarsjóðs uxu um ríflega 6% á milli ára og bæjarbúar eru ánægðir með þjónustuna. Það er heldur ekki þannig að lítið hafi verið framkvæmt og fjárfest á árinu. 

Fjárfestingar námu um 12% af tekjum sem er á svipuðum nótum og meðaltal undanfarinna ára og vel ofan við sama hlutfall hjá þorra annarra sveitarfélaga.

Staðan í Garðabæ er því þessi: Álögur á bæjarbúa eru með því lægsta sem gerist á höfuðborgarsvæðinu. Þjónusta er góð og framkvæmdir meiri en víða gerist. Tekjur bæjarins skila sér beint í þjónustu, enda eru vaxtagjöld ekki fjárfrekur útgjaldaliður.  

Að auki hefur verið hægt að fjármagna framkvæmdir í miklum mæli úr rekstri bæjarfélagsins án lántöku. Þetta er eftirsóknarverð staða og langt því frá sjálfgefin á Íslandi í dag. Farsæl fjármálastjórn er góður grunnur að góðri þjónustu og uppbyggingu. Höldum áfram á þeirri braut.

Almar Guðmundsson, skipar 6.sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×