Snæfellskonur á sextán leikja sigurgöngu inn í úrslitakeppnina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2014 20:45 Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir var öflug í kvöld. Vísir/Stefán
Deildarmeistarar Snæfells kórónuðu frábært gengi sitt í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld með því að vinna tólf stiga sigur á Keflavík, 72-60, í síðasta leik deildarkeppninnar í Stykkishólmi í kvöld. Þetta var sextándi deildarsigur Snæfellsliðsins í röð. Snæfellskonur unnu þar með 25 af 28 deildarleikjum sínum í vetur og enduðu með 50 stig eða tólf stigum meira en bikarmeistarar Hauka sem urðu í 2. sæti deildarinnar. Snæfell mætir Val í undanúrslitum úrslitakeppninnar sem hefst um næstu helgi en Haukar spila þá við Keflavík. Hildur Björg Kjartansdóttir var með 20 stig og 12 fráköst í kvöld og Hildur Sigurðardóttir gaf 11 stoðsendingar auk þess að taka 9 fráköst og skora 6 stig. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir skoraði 15 stig en Chynna Brown lét sér nægja að skora bara 10 stig í þessum leik. Di'Amber Johnson var stigahæst hjá Keflavík með 12 stig en liðið lék án Bryndísar Guðmundsdóttur og munaði að sjálfsögðu mikið um hana. Snæfell var einu stigi yfir í hálfleik, 17-16, en munurinn var orðinn sjö stig í hálfleik, 33-26. Snæfellskonur bættu síðan enn við forskotið í þriðja leikhlutanum og sigurinn var aldrei í hættu í seinni hálfleiknum þrátt fyrir að Keflavík hafi aðeins lagað stöðuna undir lokin.Snæfell-Keflavík 72-60 (17-16, 16-10, 23-19, 16-15)Snæfell: Hildur Björg Kjartansdóttir 20/12 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 15/5 fráköst, Chynna Unique Brown 10/9 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 8, Eva Margrét Kristjánsdóttir 8/6 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 6/9 fráköst/11 stoðsendingar, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 3, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 2/6 fráköst.Keflavík: Diamber Johnson 12, Bríet Sif Hinriksdóttir 9, Sandra Lind Þrastardóttir 8/5 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 7, Telma Lind Ásgeirsdóttir 7/6 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 7, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 4, Irena Sól Jónsdóttir 2, Katrín Fríða Jóhannsdóttir 2, Thelma Dís Ágústsdóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira