Formúla 1

Nico Rosberg á ráspól í Bandaríkjunum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg ætlar ekki að láta valta yfir sig í slagnum um heimsmeistaratitilinn.
Rosberg ætlar ekki að láta valta yfir sig í slagnum um heimsmeistaratitilinn. Vísir/getty
Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól eftir gríðar skemmtilega tímatöku í Austin, Texas. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji.

Breytt fyrirkomulag þýðir aðeins fjórir hægustu bílarnir duttu út í fyrstu tveimur lotunum. Svo börðust tíu hröðustu ökumennirnir í þriðju lotunni.

Sebastian Vettel hafði sagt í vikunni að hann myndi sennilega ekki taka þátt í tímatökunni. Hann neyddist til að aka einn tímatökuhring. FIA, (alþjóða akstursíþróttasambandið) minnti hann á regluna um 107%. Hann þarf að setja tíma innan við 107% frá hraðasta tímanum í fyrstu lotu annars hefur FIA val um hvort þeir leyfa honum að keppa.

Í fyrstu lotu duttu út: Romain Grosjean á Lotus, Vettel á Red Bull, Esteban Gutierrez á Sauber og Jean-Eric Vergne á Toro Rosso. Vettel hafði ekki dottið út í fyrstu lotu síðan í Brasilíu 2009.

Önnur lotan var frekar róleg og flestir náðu tveimur tilraunum. Rosberg skellti gríðarlegum hröðum tíma á töfluna undir lokin til að hrella Hamilton fyrir loka lotuna. Rosberg fór tæpri sekúndu hraðar en Hamilton í lotunni. Daniil Kvyat á Toro Rosso, Nico Hulkenberg og Sergio Perez á Force India og Pastor Maldonado á Lotus duttu út í annarri lotu.

Bottas barðist af hörku í dagVísir/Getty
Bottas barðist af höru í síðustu lotunni. Hann gat þó ekki snúið á Mercedes liðið. Eftir fyrstu tilraun í lotu þrjú var Rosberg efstur og munurinn á milli hans og Hamilton var 0,161 sekúnda.

„Góður dagur, ég er mjög ánægður, Bíllinn var góður þökk sé verkfræðingum liðsins. Brautin var stöðugt að breytast, hún kólnaði og það skiptir alltaf sköpum. Ræsingin er mikilvæg, ég ætla að reyna að halda forystunni í gegnum fyrstu beygju og þar eftir,“ sagði Rosberg sem var sáttur við dagsverkið.

„Nico stóð sig vel í dag. Vinstri bresmurnar voru alltaf um 100 gráðum kaldari en hinar. Nico hefði samt verið utan seilingar í dag,“ sagði Hamilton.

„Góð tímataka, þetta hefur verið erfið helgi, hef ekki verið að finna taktinn. Ég er ánægður fyrir hönd liðsins við náðum báðum plássunum á annarri röðinni í ræsingu,“ sagði Bottas eftir tímatökuna.

„ Þetta var flókið í dag, vindurinn átti stóran þátt í að gera aðstæður erfiðar. Ég náði engum hreinum hring. Við náðum báðir því besta úr bílnum. Ég er jákvæður, markmiðið á morgun er að ná í fleiri stig en Ferrari. Það verða tvö til þrjú þjónustuhlé á morgun,“ sagði Button eftir tímatökuna en hann varð sjöundi en ræsir tólfti, hann fékk nýjan gírkassa og er því færður aftur um fimm sæti.

Keppnin á morgun verður mjög spennandi. Munurinn er 17 stig á milli Hamilton og Rosberg. Rosberg sýndi í dag að hann ætlar ekki að gefast upp svo auðveldlega. Honum er full alvara í að ná titlinum. Þær þrjár keppnir sem eru eftir verða spennuþrungnar. Rosberg þarf að ná öðru sæti í keppninni á morgun eða keppninni í Brasilíu til að tryggja að úrslit heimsmeistarakeppninnar ráðist í síðustu keppninni í Abú Dabí, þar sem tvöföld stig verða veitt.

Ferrari var ekki mikið í sviðsljósinu í dag.Vísir/Getty
Úrslit tímatökunnar fyrir bandaríska kappaksturinn 2014:

1.Nico Rosberg - Mercedes

2.Lewis Hamilton - Mercedes

3.Valtteri Bottas - Williams

4.Felipe Massa - Williams

5.Daniel Ricciardo - Red Bull

6.Fernando Alonso - Ferrari

7.Jenson Button - McLaren

8.Kevin Magnussen - McLaren

9.Kimi Raikkonen - Ferrari

10.Adrian Sutil - Sauber

11.Pastor Maldonado - Lotus

12.Sergio Perez - Force India

13.Nico Hulkenberg - Force India

14.Daniil Kvyat - Toro Rosso

15.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

16.Esteban Gutierrez - Sauber

17.Sebastian Vettel - Red Bull

18.Romain Grosjean - Lotus

Útsending frá keppninn hefst klukkan 19:30 á Stöð 2 Sport á morgun.


Tengdar fréttir

FIA breytir tímatökunni í Texas

Færri bílar kölluðu á breytingar á fyrirkomulagi tímatökunnar í Texas annars hefðu tveir bílar dottið út í fyrstu lotu og því að litlu að keppa. Breytingarnar eru nauðsynlegar vegna fjarveru Caterham og Marussia.

Caterham má missa af tveimur keppnum

Bernie Ecclestone er tilbúinn að leyfa Caterham liðinu að sleppa tveimur næstu keppnum til að einbeita sér að því að finna kaupendur.

Hamilton fljótastur á æfingum í Texas

Lewis Hamilton náði hraðasta tímanum á báðum föstudagsæfingunum. Bretinn var þremur tíundu á undan Nico Rosberg á fyrri æfingunni en aðeins þrem þúsundustu á þeirri seinni.

Vettel sleppir væntanlega tímatökunni í Texas

Sebastian Vettel, fjórfaldur og ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1 segir að líklega muni hann sleppa tímatökunni. Tilgangurinn er að spara nýja vél sem sett verður í bílinn.

Stóru liðin ætla að skaffa litlu liðunum bíla

Bernie Ecclestone segir að samningur sem gerður hefur verið við stærri liðin í Formúlu 1 gæti leitt til þess að þau skaffi minni liðunum bíla. Þetta gæti komið til ef allt stefnir í mikla fækkun keppnisliða.

Bræður vilja bjarga Marussia

Bresk-indverskir bræður, Baljinder Sohi og Sonny Kaushal eru nú í samningaviðræðum við forsvarsmenn Marussia. Þeim virðist vera full alvara í að reyna að bjarga liðinu.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×