Erlent

Hundruð komu sér fyrir bakvið götuvígi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/ap
Lögreglan í Hong Kong ruddi í dag burt götuvígi sem lýðræðissinnar höfðu sett upp í miðborginni. Hundruð stóðu vaktina bakvið götuvígið, annan daginn í röð, og lokuðu þar með umferð inn á helstu viðskiptasvæði Hong Kong.

Lögregla notaði vélsagir og tangir til að fella tálmann sem búinn var til úr bambus og ýmsu öðru sem mótmælendur höfðu sankað að sér.

Til átaka kom í gær á milli mótmælenda og hóps grímuklæddra manna sem réðust að mótmælendunum sem komið höfðu sér fyrir bakvið götuvígið. Hópurinn taldi um fimm hundruð manns en ekki er ljóst hverjir voru þar á ferð.

Mótmælin hafa nú staðið yfir í rúmar tvær vikur en íbúarnir krefjast þess að kosningarnar á þarnæsta ári verði án fyrirhugaðra afskipta kínverska kommúnistaflokksins. 


Tengdar fréttir

Mótmælendur hóta hertum aðgerðum

Leiðtogar mótmælenda í Hong Kong vöruðu við því að ef æðsti yfirmaður Hong Kong segði ekki af sér í gær myndu þeir fjölga mótmælaaðgerðum sínum, þar á meðal leggja undir sig þó nokkrar mikilvægar byggingar stjórnvalda.

Hóta enn frekari aðgerðum

Talið er að mótmælin í miðborg Hong Kong hafi náð hámarki í dag á þjóðhátíðardegi Kína. Mótmælendurnir hafa þó hótað að herða aðgerðir sínar enn frekar og ætla að leggja undir sig opinberar stjórnarbyggingar í miðborg Hong Kong, láti æðstu embættismenn ekki af störfum.

Táragasi beitt gegn mótmælendum

Lögreglumenn í Hong Kong hafa varið ákvörðun sína um að nota táragas og fleiri aðferðir til að hafa stjórn á mótmælendum í fjármálahverfi borgarinnar.

Leiðtogi Hong Kong hvetur mótmælendur til að halda heim á leið

Æðsti embættismaður Hong Kong, CY Leung, hvatti í nótt mótmælendur til þess að halda til síns heima og láta þegar í stað af mótmælum sínum. Ekki verður orðið við þessari beiðni því á meðal krafna mótmælenda er einmitt að Leung sjálfur segi af sér embætti.

Fjarlægðu vegatálma í borginni

Hluti lýðræðissinna í Hong Kong ákvað í gær að fjarlægja suma af þeim vegatálmum sem búið var að koma fyrir á vegum og gangstéttum í borginni. Einnig ákváðu þeir að draga úr mótmælum sínum.

Aukin harka í mótmælunum í Hong Kong

Aukin harka færðist í mótmælin í Hong Kong í dag eftir að æðsti embættismaður Hong Kong, CY Leung, skipaði lögreglu að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að hægt væri að opna opinberar skrifstofur og skóla á mánudag.

Hong Kong búar loka fyrir umferð

Lögregla beitti í nótt piparúða á mótmælendur sem höfðu í þúsundatali sest á götur og lokað fyrir umferð í miðborg Hong Kong.

Mótmælt í Hong Kong á þjóðhátíðardegi Kína

Yfirvöld og íbúar í Hong Kong búa sig nú undir fjölmennustu mótmælin í borginni til þessa en í dag er þjóðhátíðardagur Kínverja. Æðsti embættismaður Hong Kong, CY Leung, en borgin hefur verið hluti af Kína frá árinu 1997, segir að kröfum mótmælenda verði aðeins svarað í góðri samvinnu við yfirvöld á kínverska meginlandinu.

Vilja fund með leiðtoga Hong Kong

Mótmælendur í Hong Kong krefjast fundar með Leung Chun-ying leiðtoga borgarinnar. Hann segir Kínverja ekki gefa neitt eftir.

Lýðræðislegar umbætur í limbói

Hong Kong var bresk nýlenda í rúm 150 ár og þekkja íbúar borgarinnar ekki hvað það er að stjórna sér alfarið sjálfir. Þrátt fyrir að Kínverjar leyfi Hong Kong-búum það að mestu eiga þeir samt erfitt með að færa kosningakerfið í lýðræðisátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×