Lífið

Á svið með Skímó eftir tíu ára hlé

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Einar Ágúst Víðisson segir það hafa verið unað að vera á sviðinu með gömlu félögunum.
Einar Ágúst Víðisson segir það hafa verið unað að vera á sviðinu með gömlu félögunum. Vísir/ValLI
Einar Ágúst Víðisson kom fram með Skítamóral á Spot á laugardagskvöld, í fyrsta skipti í tíu ár.

„Þetta var unaður, eins og að vera kominn heim,“ segir Einar Ágúst. „Ég er þeim ótrúlega þakklátur fyrir að leyfa gamla að kýla á þetta aftur.“

Einar segir að ákveðið hafi verið með stuttum fyrirvara að hann yrði leynigestur kvöldsins en hugmyndir séu um að reyna að endurtaka leikinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.