Innlent

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald vegna hópnauðgunar

VÍSIR/Vilhelm
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fjórum af fimm piltum sem grunaðir eru um að hafa nauðgað sextán ára stúlku. Einn piltanna kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar. 

Drengirnir fimm hafa verið í einangrun á Litla Hrauni frá því á föstudag þegar héraðsdómur kvað upp úrskurð sinn. Yfirheyrslur hafa staðið yfir síðan.

Lögreglan fór fram á gæsluvarðhald í síðustu viku og dómari samþykkti það á föstudaginn var. Þeir verða því í gæsluvarðhaldi fram á fimmtudaginn næstkomandi til klukkan fjögur og er gert að sæta einangrun á meðan gæsluvarðhaldinu stendur.

Piltarnir eru á aldrinum 17 til 19 ára. Stúlkan kærði nauðgunina til lögreglu á miðvikudaginn í síðustu viku. Í kjölfar kærunnar voru piltarnir handteknir og í greinargerð lögreglu kemur fram að símar þeirra og tölvur hafi verið haldlagðar. Kærðu hafi allir gengist við því að hafa haft samfarir við stúlkuna en sagst hafa talið það hafa verið með hennar samþykki. Kærðu beri þó ekki saman um atburðinn og atburðarás tengda honum.

Atvikið mun hafa átt sér stað í Breiðholti aðfaranótt sunnudagsins 4. maí. Það mun hafa verið tekið upp á myndband af einum hinna fimm og gengið á milli fólks síðan verknaðurinn átti sér stað. Það mun þó ekki vera aðgengilegt á internetinu en lögregla hefur það undir höndum.

Fimmmenningarnir hafa verið nafngreindir á Facebook. Meðal þeirra sem nafngreindi þá er ung stúlka sem telur sig hafa vitneskju um málið. 


Tengdar fréttir

Fimm piltar handteknir vegna hópnauðgunar

Fórnarlambið er sextán ára menntaskólastúlka. Dómari í héraðsdómi hefur tekið sér frest til morguns til að ákveða um gæsluvarðhald. Ungu mennirnir eru í haldi lögreglu og verða vistaðir í fangageymslum í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×