Sakaðir um umboðssvik vegna lána til vildarvina Stefán Árni Pálsson skrifar 11. júní 2014 10:41 Hreiðar Már mætir í Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. Vísir/Pjetur
Ákæra á hendur fyrrverandi stjórnendum Kaupþings, þeim Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guðmundssyni fyrir umboðssvik, var þingfest í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir eru ákærðir í þriðja sinn af sérstökum saksóknara en ákæran er vegna tugmilljarða lánveitingar vegna viðskipta með skuldatryggingar fyrir hrun. Þeim er gert að hafa misnotað stöðu sína sem stjórnendur bankans í lánveitingum til nokkurra eignarhaldsfélaga sem voru í eigu vildarviðskiptavina bankans. Lánin voru svo notuð til að kaupa skuldatryggingar á Kaupþings banka, eða svokölluð Credit Linked Notes, með það fyrir augum að lækka skuldatryggingarálag bankans í aðdraganda bankahrunsins árið 2008. Í ákærunni kemur fram að lánin hafi numið tugum milljarða króna. Rætt verður við Hreiðar Má í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld klukkan 18:30. Samkvæmt ákærunni voru lánin veitt til að hafa áhrif á skuldatryggingu Kaupþings og þannig lækka fjármagnskostnað bankans. Í ákærunni segir; „Lánin voru öll veitt í evrum þótt staða bankans í erlendri mynt væri orðin erfið og undir lokin svo erfið að bankinn fékk 500 milljóna evra neyðarlán frá Seðlabanka Íslands en hluta af því fjármagni var varið til að fjármagna síðustu lánveitingarnar sem ákært er fyrir.“ Félögin sex sem lánað var til voru skráð á bresku Jómfrúareyjunum. Þau voru í eigu eða nátengd þeim Skúla Þorvaldssyni, Ólafi Ólafssyni og Kevin Stanford, nokkrum af stærstu viðskiptamönnum Kaupþings. Sigurður Einarsson, Hreiðar Már og Magnús Guðmundsson. Útséð virðist með að mikið verði endurheimt af lánsfjárhæðinni: „Það samræmist vel þeirri staðreynd að félögin voru nær eignalaus þegar lánin voru veitt lánunum var öllum ráðstafað til kaupa á lánshæfistengdum skuldabréfum, CLN, sem urðu svo verðlaus. Samkvæmt framansögðu liggur fyrir að lánsféð, 510 milljónir evra eða 67,3 milljarðar króna, er Kaupþingi hf. glatað og ljóst að ákærðu hafa með háttsemi sinni valdið Kaupþingi hf. gríðarlegu og fáheyrðu fjártjóni.“ Umboðssvik geta varðað allt að sex ára fangelsi ef sakir eru miklar. Sigurður Einarsson, einn hinna ákærðu í málinu, fjallaði um þessi viðskipti með skuldatryggingar á Kaupþingi í bréfi til vina og vandamanna í janúar 2009. Í bréfinu segir Sigurður að hugmyndin að bankinn færi að lána til kaupa á skuldatryggingum hafi komið frá Deutsche bank. Í bréfinu segir Sigurður: „Að tillögu Deutsche Bank var ákveðið að láta reyna á hvað myndi gerast ef bankinn myndi sjálfur fara að kaupa þessar tryggingar. Það var hins vegar ekki einfalt mál, þar sem bankinn gat ekki gefið út tryggingar á sjálfan sig. Því var gripið til þess ráðs að fá viðskiptavini okkar sem við treystum vel og höfðum átt langvarandi samskipti við sem byggðust á trausti og hollustu til að eiga þessi viðskipti fyrir hönd bankans. Vitanlega hefðum við aldrei átt þessi viðskipti nema vegna þessara sérstöku aðstæðna. Viðskiptin voru gerð með hagsmuni bankans að leiðarljósi og í fullu samræmi við lög og reglur.“
CLN-málið Mest lesið Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Ferðatryggingar og val á kreditkorti Viðskipti Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Gefa út afkomuspá eftir allt saman Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Sjá meira