Hundaskítur í garði Egils Helgasonar Jakob Bjarnar skrifar 6. október 2014 15:48 Hjónin Egill og Sigurveig búa við að svo virðist sem óprúttinn hundaeigandi vísi hundi sínum sérstaklega inní garð til þeirra og þar gerir hann stykki sín.
Egill Helgason sjónvarpsmaður skrifaði fyrir helgi færslu á Facebook-vegg sinn sem vakti mikla athygli, svohljóðandi: „Það er miklu meiri ami að hundaeigendum en túristum eða fullu fólki hér í miðbænum. Hvarvetna rekst maður a hundaskít. Þeir fara meira að segja með hundana inn í garð hjá manni til að skíta.“ Og kona Egils, Sigurveig Káradóttir, beinir svohljóðandi skilaboðum til Facebook-vina sinna: „Eigandi hundaskítsins í garðinum hjá mér má alveg koma og nálgast hann. Lofa að taka hann ekki - hann bíður þarna á sínum stað. Takk fyrir.“Gaddavírsgirðing og lás á hliðið Þau hjón búa við Skólastræti, í hjarta miðbæjarins, og segir Sigurveig þetta algerlega óskiljanlegt. Hlið er inn í garð þeirra en það virðist ekki stoppa hina ósvífnu hunda og eigendur þeirra. „Það þarf að fara að taka á þessu einhvern veginn. Sektir og ef það gengur ekki, ætti fólk sem er ekki fært um að sjá um hundana sína ekki að fá að hafa hunda.“ Hún segir slæmt ef hún þurfi að fá sér gaddavírsgirðingu og lás á hliðin. Margir verða til að taka undir með Agli, þeirra á meðal Eiður Svanberg Guðnason sem segir svohljóðandi sögu til marks um þennan vanda: „Satt segirðu. Mætti ungri stúlku með hund í bandi á göngustígnum við Sjálandsskóla um hádegið í gær. Sem við mættust skeit hundurinn á gangstíginn. Hún lét sem hún sæi það ekki. Arkaði áfram. Êg spurði: Ætlarðu ekki að hreinsa upp eftir hundinn þinn? - Êg er ekki með neinn poka, sagði hún! Þessi unga stúlka var sóði. Ekki hundurinn.“Erfitt að sanna hver á skítinnÁrný Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar. Undir hana heyrir hundahald í borginni og hún segir að til sín eigi að beina kvörtunum af þessu tagi. Og Árný bendir á hundasamþykktina, sem er býsna ítarleg, og eftir henni ber hundaeigendum að fara. Þar er kveðið skýrt á um að eigendur eiga að hirða upp eftir hunda sína. „Hversu mikið vandamál þetta er skal ég láta ósagt því það er ekki mikið af kvörtunum undan þessu, eitthvað en ekki mikið og heldur minnkað en hitt. En einn hundaskítur á götunni er vissulega einum hundaskít of mikið,“ segir Árný. Hún bendir á að það geti komið upp vandræði, að einhver búi við hlið slóða sem ekki hirða upp eftir hunda sína. „Sektir? Spurningin er hvort það sem úrræði myndi breyta einhverju? Þú sannar ekki svo auðveldlega úr hverjum hundaskítur er. Spurningin er hvernig framkvæmdin á slíku yrði og þá sönnunarbyrði. Nema fólk sé hreinlega staðið að verki. Það hefur ekkert mikið verið rætt en samkvæmt lögreglusamþykkt er heimild fyrir sekt; bara þá í tengslum við að henda rusli, skilja eftir sig úrgang eða rusl. Lögreglan er með slíkar heimildir.“Hundaeigendur standa sig í stykkinuFríður Ester Pétursdóttir er framkvæmdastjóri Hundaræktarfélags Íslands og hún segist ekki hafa orðið vör við kvartanir vegna þessa. Meira að þetta komi upp í leysingum, en þetta sé ekki tíminn. Auðvitað eru einhverjir hundaeigendur sem ekki standa sig í stykkinu en hundaeigendur upp til hópa séu sér meðvitaðir um þetta. „Mér finnst hundafólk duglegt að hirða upp og að benda öðrum hundaeigendum á nauðsyn þess. Okkar félagsmenn eru náttúrlega bara brot af íslenskum hundaeigendum en í kringum hundasýningar, þar sem stór hópur hunda kemur saman, 800 hundar, þá er þetta hirt upp jafnóðum. Hvergi skít að sjá, eða það heyrir til algerra undantekninga,“ segir Fríður. Fríður bendir á nokkuð, sem er athyglisvert í ljósi orða Árnýjar um að kvartanir hafi fremur dregist saman en hitt, að hundahald hafi vaxið til mikilla muna. En, þetta vandamál með hundaskítinn hefur ekki aukist heldur þvert á móti, og í raun minnkað verulega sé litið til hlutfalls.Hundaeigendur greiða há gjöldFríður telur það ekki ráðlegt að fara út í að halda úti einhverjum hundaskítseftirlitsmanni, erfitt sé að færa sönnur á hver á hundaskítinn, slíkt verði varla gert nema með DNA-greiningu. „Meira vit væri að fara í aukna vitundarvakningu. Gera hundaeigendur meðvitaða um þetta, setja upp skilti eða eitthvað slíkt og nota eitthvað af þessum gjöldum sem hundaeigendum er gert að inna af hendi. Ég veit ekkert í hvað þeir peningar fara, ekki mikið gert fyrir hundaeigendur nema kannski halda úti Geirsnefi,“ segir Fríður. Hún telur það varla geta kostað svo mikið. Og gjöld sem hundaeigendur þurfa að greiða eru rífleg. Skráning kostar 18 þúsund, skráning eftir útrunninn frest 27.480 krónur, árlegt eftirlitsgjald er 18 þúsund krónur, handsömun hunds kostar 27,350 krónur og daggjald geymslu er 2.200 krónur. Eftir því sem Vísir kemst næst komu inn í kerfi borgarinnar um 30 milljónir króna frá hundaeigendum í fyrra, en samkvæmt hundasamþykktinni er gert ráð fyrir því að allt eftirlit með hundahaldi og umstang standi undir sér.
Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Innlent Fleiri fréttir „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Sjá meira