Lífið

Nýstárlegar leiðir til að stunda sjálfsfróun

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Blaðakonan Lane Moore hjá tímaritinu Cosmopolitan skrifar grein á vef tímaritsins um ellefu leiðir fyrir konur til að stunda sjálfsfróun a nýstárlegan hátt.

Hér fyrir neðan eru nokkrar uppástungur frá Lane en greinina í heild sinni má lesa hér.

Í öllum fötunum

„Dagurinn er búinn að vera langur og erfiður. Af hverju ekki að leggjast niður og setja hendurnar undir nærbuxurnar því þú ert of löt til að fara úr þeim? Taskan við hliðina á þér á gólfinu og hælaskórnir fljúga af því þú þarft á þessu að halda núna.“

Notaðu hina höndina

„Þig langar að prófa eitthvað nýtt í kvöld þannig að prófaðu að nota höndina sem þú ert ekki vön að nota til að fróa sér. Það á eftir að vera skrýtið, næstum því eins og þú sért að gamna þér með einhverjum í fyrsta sinn, og það er það sem gerir þetta svo kynþokkafullt.“

Farðu lengri leiðina

„Trúboðastellingin verður þreytt, jafnvel þegar maður gerir hana einn, þannig að leggstu á grúfu á kodda, settu höndina fyrir aftan bak og á milli fótleggjanna. Notaðu koddann til að kæfa stunurnar.“


Einnar konu trekantur

„Ef þú setur eina hönd á snípinn og hina á geirvörturnar gleymirðu því næstum því að þú sért ekki með tvo, heita Svía að fullnægja þörfum þínum. Af því það er raunin í huga þínum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×