Lífið

Ofurfyrirsæta fjölgar sér

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Verðandi foreldrar.
Verðandi foreldrar. vísir/getty
Ofurfyrirsætan Coco Rocha á von á barni með eiginmanni sínum, listamanninum James Conran.

Coco tilkynnti þetta á Instagram-síðu sinni í dag og lét myndband fylgja með af líkama sínum og agnarsmárri óléttubumbunni.

„Við erum svo spennt og í sjöunda himni að tilkynna að eftir fjögurra ára hjónaband að við erum að stækka fjölskylduna og eigum von á okkar fyrsta barni vorið 2015!“ skrifar Coco. 

Loading

@JamesEdwardConran and I are absolutely thrilled to announce that after 4 years of marriage we are expanding our family and expecting our first child spring of 2015! - James & Coco

View on Instagram






Fleiri fréttir

Sjá meira


×