Lífið

Fræða börnin áður en þau byrja að skoða klám

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir gerðu myndina Stattu með þér! í sameiningu.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir gerðu myndina Stattu með þér! í sameiningu. vísir/valli
„Íslensk börn eru að meðaltali 11 ára gömul þegar þau sjá klám í fyrsta skipti. Það segir okkur að 10-12 ára krakkar eru alls ekki of ungir til að fá fræðslu því þau þurfa að þróa með sér gagnrýna hugsun,“ segir Brynhildur Björnsdóttir, leikstjóri myndarinnar Stattu með þér! sem frumsýnd verður í öllum grunnskólum landsins á fimmtudaginn.

Brynhildur og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir unnu myndina saman og er hún sjálfstætt framhald „Fáðu já!“ sem þær stöllur gerðu ásamt Páli Óskari. Sú mynd var ætluð börnum í 10. bekk en myndirnar eiga það sameiginlegt að vera forvarnarmyndir gegn kynferðisofbeldi.

„Við fengum þau skilaboð frá krökkunum sem sáu Fáðu já! að þau hefðu viljað fá þessa fræðslu fyrr. Börn á aldrinum tíu til tólf ára eru markhópur fyrir alls kyns kynferðisleg skilaboð löngu áður en þau komast á unglingsaldur,“ segir Brynhildur.

Í myndinni er ekki fjallað á beinan hátt um kynlíf og klám heldur er verið að reyna að undirbúa börnin fyrir áreitið sem þau munu verða fyrir frá umhverfinu.

„Við viljum að þau noti gagnrýna hugsun þegar þau þurfa að taka ákvörðun um hvort þau til dæmis sendi nektarmynd af sér vegna þrýstings frá félögum. Einnig förum við yfir hluti eins og fjölmiðlalæsi, líkamsvitund, að vera stoltur af líkama sínum og tökum þar photoshop sérstaklega fyrir,“ segir Brynhildur og vonar að árangurinn verði að börn standi með eigin skoðunum og viðhorfum í stað þess að taka þátt í einhverju sem þeim þykir óþægilegt, þótt auðvitað beri gerendur alltaf ábyrgð á ofbeldi en ekki þeir sem verða fyrir því. Fyrst og fremst þurfi börn þó að bera virðingu fyrir sjálfum sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×