Lífið

„Hvar er Beyoncé?!“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Christine Livingston birtir myndband af sautján ára syni sínum á YouTube sem er vægast sagt spaugilegt.

Sonurinn er nýkominn frá tannlækninum þar sem endajaxl var fjarlægður úr gómi hans.

Pilturinn kemst í mikið uppnám inní bíl móður sinnar því hann skilur ekki af hverju átrúnaðargoðið hans, poppsöngkonan Beyoncé er ekki á staðnum.

Sonur Christine er greinilega frekar ringlaður eftir tannlæknaheimsóknina og fer að gráta yfir því að Beyoncé hafi ekki tekið á móti honum eftir aðgerðina.

Sjón er sögu ríkari!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×