Lífið

Imogen Heap í myndatöku á Íslandi

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Jeremy Cowart
Ljósmyndarinn Jeremy Cowart, sem hefur verið nefndur áhrifamesti ljósmyndarinn á netinu, tók myndir af bresku tónlistarkonunni Imogen Heap á Íslandi í ár. Myndirnar voru teknar fyrir fjórðu plötu hennar, Sparks, sem kom út í ágúst.

„Það var skítkalt,“ ritaði Jeremy á blogginu sínu. „Ég var klæddur í fimm lög af REI kuldafötum á meðan Imogen var í einni flík allan tímann. Ég heyrði hana ekki kvarta einu sinni. Það er klikkað,“ ritar Jeremy.

„Vanalega fer fólk að væla ef ég er að taka myndir af þeim og kuldastigið fer niður fyrir 20°, svo að Imogen á heiður skilinn fyrir að vera miklu harðari en við öll.“

Hægt er að sjá myndirnar á bloggsíðu Jeremys.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×