Innlent

Páll Óskar og Selma Björns leggja Eurovision-lagi lið

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Söngkonan Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og lagahöfundurinn Karl Olgeirsson eiga eitt af lögunum tíu sem taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins.

Lagið heitir 
Lífið kviknar á ný en þar sem tvíeykið hefur ekki leyfi til að spila það strax ákváðu þau að fara ótroðnar slóðir í kynningu og fengu m.a. til liðs við sig Eurovision-farana Pál Óskar, Selmu Björns og Helgu Möller ásamt stórsöngvaranum Ragga Bjarna og Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi menntamálaráðherra.

Ísland í dag sviptir hulunni af herlegheitunum klukkan 18:55 í kvöld, strax að loknum fréttum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×