Sport

Forseti WBC látinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jose Sulaiman.
Jose Sulaiman. nordicphotos/getty
Jose Sulaiman, forseti hnefaleikasambandsins WBC, er látinn 82 ára að aldri.

Sulaiman lést á sjúkrahúsi í Los Angeles í gær en Mauricio Sulaiman, sonur hans, staðfesti þetta við bandaríska fjölmiðla.

Sulaiman  var tengdur hnefaleikum alla sína ævi en hann var boxari til að byrja með. Því næst snéri hann út í þjálfun og dómgæslu.

Hann var kjörin forseti WBC árið 1975 og hefur gengt þeirri stöðu síðan.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×