Tónlist

Frumsýnt á Vísi: Nýtt myndband frá Eurovision-parinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir frumsýnir nýtt myndband frá Eurovision-parinu Siggu Eyrúnu og Kalla Olgeirs við lagið Heima.

Kalli samdi lagið en flutningur er í höndum parsins.

„Ég var staddur á erfiðum stað í lífinu, að mér fannst, og samdi þetta lag til að hjálpa mér við að komast yfir erfiðasta hjallann. Enda er lagið fullt af von og bjartsýni. Ljós við enda ganganna,“ segir Kalli en þetta er fyrsti dúettinn sem hann syngur inn á plötu. Lagið verður að finna á plötu Siggu Eyrúnar, Vaki eða sef, sem kemur út seinna á þessu ári.

„Þegar Friðrik Ómar var að safna lögum á plötu kom hann til mín til Svíþjóðar, þar sem ég bjó þá, að hlusta á demóin mín og þegar hann heyrði þetta þá fannst honum þetta tilvalið sem dúett. Mér fannst liggja beinast við að Sigga myndi syngja þetta með mér.“

Myndbandið er unnið af Karli Olgeirssyni og systursyni hans, Daníel Frey Gunnarssyni og er tekið upp í fallegum bakgarði í Vesturbænum í lok maí. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×