Öryggiseftirlit hert í Rússlandi vegna fjöldamorða Birta Björnsdóttir skrifar 9. janúar 2014 21:45
Öryggiseftirlit var aukið til muna í Rússlandi í dag eftir að lík fimm manna fundust í fjórum bifreiðum í Stravopol, um 300 kílómetrum austan við Sochi, þar sem Vetrarólympíuleikarnir verða settir þann 7.febrúar næstkomandi. Sprengja sprakk í nágrenninu þegar lögreglan nálgaðist eina af bifreiðunum, en engan sakaði. Þó öryggiseftirlit hafi verið hert í dag er ekki þar með sagt að enginn hafi staðið vaktina hingað til, en um 37 þúsund lögreglu- og hermenn hafa verið kallaðir til starfa í tengslum við Ólympíuleikana. Lögreglan handtók þrjá menn fyrr í dag grunaða um morðin, en að minnsta kosti tveir þeirra eru sagðir hafa tengsl við herská samtök íslamista. Íslamistar í Kákasushéruðunum hafa árum saman staðið í aðskilnaðarbaráttu sinni og hafa margsinnis hótað því að fjölga sprengjuárásum í aðdraganda Ólympíuleikanna, nú þegar athygli heimsbyggðarinnar beinist að Sochi. Í lok desember létu 31 lífið í tveimur sjálfsmorðssprengjuárásum í Volgograd, sem liggur um 700 kílómetrum suð-austan við Sochi. Alþjóðlega Ólympíunefndin sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar sprengjuárásanna í desember þar sem þeir lýstu yfir fullu trausti á hæfni rússneskra yfirvalda til að gæta öryggis á Vetrarólympíuleikunum í hvívetna.
Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira