Wenger býst ekki við að Walcott lendi í vandræðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2014 21:49 Theo Walcott. Mynd/AP
Arsenal-maðurinn Theo Walcott stal senunni í kvöld þegar hann var borinn af velli undir lokin í bikarsigri Arsenal á móti Tottenham. Walcott brást við „árásum" stuðningsmanna Tottenham með því að brosa og sýna stöðuna í leiknum með höndunum en hún var þá 2-0 fyrir Arsenal sem urðu svo lokatölur leiksins. Stuðningsmenn Tottenham létu sér ekki nægja að öskra á Walcott heldur létu þeir einnig rigna yfir hann smápeningum. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var spurður út í viðbrögð Theo Walcott og það að einhver gæti túlkað þau sem tilraun til að æsa upp stuðningsmenn Tottenham-liðsins. „Ég held að hann lendi ekki í veseni útaf þessu. Hann var ekki agressívur og gerði þetta með bros á vör," sagði Wenger sem sagði þetta hafi verið viðbrögð við því að stuðningsmenn Tottenham hentu peningum í Walcott. „Læknirinn okkar sagði að smápeningunum hefðu rignt yfir þá og þeir voru að reyna að verja Theo. Það á örugglega sinn þátt í því að hann brást svona við," sagði Arsene Wenger eftir leikinn. Kannski er ein af lausnunum að bera leikmenn hér eftir styðstu leið útaf af vellinum en ekki meðfram öllum leikvellinum eins og í tilfelli Theo Walcott í kvöld. Fleiri en Wenger eru reyndar farnir að taka upp hanskann fyrir Theo Walcott. Sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan, er mikill stuðningsmaður Arsenal og hann tilkynnti það á twitter að ef Walcott fengi sekt fyrir athæfið myndi hann borga hana úr eigin vasa.Theo Walcott á sjúkrabörunum.Mynd/APVallarstarfsmaður með hluta smápeningana sem var kastað í Theo Walcott.Mynd/NordicPhotos/GettyMynd/AP
Enski boltinn Mest lesið Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ Íslenski boltinn „Fær vonandi stórbrotinn endi á stórbrotnum ferli“ Sport Fleiri fréttir Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Sjá meira