Tíska og hönnun

Er stærð 12 yfirstærð?

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ekki eru allir á eitt sáttir með nýju fatalínu spænska fatarisans Mango sem setti nýverið á markað línuna Violeta fyrir konur í yfirstærð. Klæðnaðurinn fæst í stærðum 12 til 24 og blöskrar mörgum að forsvarsmenn Mango telji að konur sem noti stærri stærðir en 10 séu í yfirstærð.

Neytendur á Spáni og í Bretlandi hafa notað Twitter til að kvarta yfir línunni en í henni eru fjögur hundruð flíkur sem fóru í sölu á netinu í dag en koma í verslanir á morgun. Spænskir viðskiptavinir tískurisans ganga svo langt að fara fram á að sölu á Violeta verði hætt. Lögfræðingurinn Arantxa Calvera hefur stofnað undirskriftarlista þess efnis og hafa 57 þúsund manns skrifað undir nú þegar.

„Að telja að stærð 12 sé yfirstærð sýnir mjög brenglaða mynd af raunveruleikanum,“ segir Arantxa.

„Tilgangur Violeta by Mango er að klæða ungar konur í stærðum 12 til 24 í flíkur sem hannaðar eru til að vera þægilegar, kvenlegar og nútímalegar,“ segir talskona Mango.

Umdeild lína.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×