Tíska og hönnun

Dökk og dularfull fyrir Alexander McQueen

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ofurfyrirsætan Kate Moss er dökk og dularfull í nýrri auglýsingaherferð fyrir tískurisann Alexander McQueen.

Ljósmyndarinn Steven Klein myndaði Kate í austurhluta Lundúnaborgar en á myndunum minnir Kate óneitanlega á leikkonuna og Íslandsvinkonuna Tildu Swinton.

Þá framleiddi Steven líka tískumynd fyrir herferðina. Sótti hann innblástur í bresku spennumyndina Peeping Tom sem fjallar um raðmorðingja sem drepur konur og tekur síðustu andartök þeirra upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×