Erfiðara að fá Bandaríkjamenn til landsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. janúar 2014 17:15 Chuck Chijindu í leik með Þór í 1. deildinni sumarið 2012. Mynd/Heimasíða Þórs
Knattspyrnusamband Íslands hefur sett þrengri skilyrði á félagaskipti leikmanna frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins, Grænlands og Færeyja. Breyting á reglugerð KSÍ varðandi félagaskipti tók gildi á dögunum. Nú þurfa félög sem ætla að fá leikmenn frá öðrum svæðum s.s. fjölmörgum Austur-Evrópuþjóðum, Bandaríkjunum, Suður-Ameríku, Asíu, Afríku og Eyjaálfu að ganga frá dvalar- og atvinnuleyfi fyrir leikmenn sína áður en félagaskipti ganga í gegn. Segir í skýrslu KSÍ að Útlendingastofnun hafi gert ítrekaðar athugasemdir við að hingað komi til landsins leikmenn án dvalarleyfis og geri jafnvel leikmannasamninga. Síðastliðið sumar sagðist Chuck Chijindu, bandarískur framherji Þórs í Pepsi-deild karla, ekki hafa fengið nein laun greidd fyrri hluta tímabils. Kom það til af því að hann hafði ekki verið með atvinnuleyfi. „Það má eiginlega segja að ég hafi fengið launin greidd eftir á,“ sagði Chuck í samtali við Fréttablaðið. Þá hefur einnig verið gerð sú breyting á fyrirkomulagi um lánssamninga að aðeins félög í Pepsi-deild karla og kvenna auk 1. deildar karla geti lánað leikmenn. Öll félög geta fengið leikmenn að láni en aðeins frá félögum í fyrrnefndum deildum.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Körfubolti Fleiri fréttir Hermann hættur með ÍBV Bestu guttarnir í Bestu deild karla Birkir á leið til Vals á nýjan leik Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Óvíst hvort Tryggvi Hrafn verði meira með Val á leiktíðinni Óttast ekki bikarþynnku: „Alvöru sigurvegarar finna sér hvatningu“ Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Fram án þriggja gegn KR Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Sjá meira