Björn Bergmann lánaður til Molde Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2014 17:07 Vísir/Getty
Björn Bergmann Sigurðarson hefur verið lánaður frá enska C-deildarliðinu Wolves til Molde í Noregi, þar sem hann mun klára tímabilið. Þetta er staðfest á heimasíðu Wolves í dag en þar sem tímabilinu í Noregi lýkur ekki fyrr en seint í haust verður Björn Bergmann ekki gjaldgengur með Wolves á nýjan leik fyrr en um næstu áramót. Það er þó talið að Molde hafi forkaupsrétt á honum að samningstímanum liðnum. Björn Bergmann kom fyrst til Englands sumarið 2012 frá Lilleström í Noregi fyrir um 370 milljónir króna. Hann var keyptur til liðsins af Ståle Solbakken, þáverandi þjálfara liðsins. Núverandi stjóri Wolves, Kenny Jackett, segir að það hafi verið ósk Björns að komast í burtu frá liðinu og út fyrir England. „Honum finnst að fótboltinn þar muni henta honum betur en í Englandi og þá sérstaklega í League One [C-deildinni],“ sagði Jackett. „Hann fer nú til mjög góðs félags í eitt ár þar sem hann fær tækifæri til að byggja sig upp á nýjan leik.“ Björn Bergmann, sem hefur ekkert spilað með Wolves á nýju ári, var alls 33 sinnum í byrjunarliði Wolves og kom 27 sinnum við sögu sem varamaður. Hann skoraði alls sjö mörk.
Enski boltinn Fótbolti á Norðurlöndum Tengdar fréttir Björn Bergmann á leið aftur til Noregs Norskir fjölmiðlar greina frá því að norsku bikarmeistararnir í Molde séu á góðri leið með að fá Björn Bergmann Sigurðarson frá Wolves. 31. janúar 2014 10:46 Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Sjá meira
Björn Bergmann á leið aftur til Noregs Norskir fjölmiðlar greina frá því að norsku bikarmeistararnir í Molde séu á góðri leið með að fá Björn Bergmann Sigurðarson frá Wolves. 31. janúar 2014 10:46