Stærstu nöfnin áfram á heimsmótinu í holukeppni Kári Hinriksson skrifar 19. febrúar 2014 00:01 Rory McIlroy hafði betur gegn Boo Weekley í fyrstu umferð. Vísir/AP
Heimsmótið í holukeppni hófst í dag en alls fá 64 af bestu kylfingum heims boð í mótið. Þrátt fyrir að nokkur stór nöfn á borð við Tiger Woods, Adam Scott og Phil Michelson hafi ákveðið að vera ekki með að þessu sinni bauð fyrsti dagur mótsins upp á frábært golf og töluverða dramatík, enda ekki um hverja helgi sem allir efstu menn á heimslistanum, bæði frá evrópsku mótaröðinni og þeirri bandarísku, etja kappi í jafn skemmtilegu fyrirkomulagi og holukeppnin er. Ljóst er að Dove Mountain völlurinn er að standa undir nafni sem einn skemmtilegasti holukeppnisvöllur heims en víðar brautir, eyðimörkin í Arizona og mjög hæðóttar flatir hans bjóða bestu kylfingum heims ýmsar áskoranir.Sergio Garcia fór í bráðabana í fyrstu umferð.Vísir/APLeikið í fjórum riðlumAlls er kylfingum skipt í fjóra riðla sem nefndir eru eftir fjórum goðsögnum í golfsögunni, þeim Bobby Jones, Ben Hogan, Gary Player og Sam Snead. Í Gary Player riðlinum lagði Matt Kuchar, sem á titil að verja síðan í fyrra, Bernd Wiseberger frá Austurríki 3/2 á meðan að fyrrum besti kylfingur heims, Luke Donald tapaði illa fyrir ítalska kylfingnum Matteo Manasero 5/4 sem mun mæta Jason Dufner í 32 manna úrslitum. Justin Rose, sem sigraði Opna bandaríska meistaramótið á síðasta ári, vann einnig sinn leik í fyrstu umferð þegar hann hafði betur gegn Scott Piercy 2/1. Sam Snead riðillinn var einnig ansi áhugaverður en Graeme McDowell lagði hinn gríðarlega högglanga Gary Woodland á fyrstu holu í bráðabana eftir afar spennandi leik þar sem McDowell vann síðustu fjórar holurnar til að komast áfram. Sigurvegari Northern Trust Open mótsins um síðustu helgi, Bubba Watson, átti í töluverðum vandræðum með finnska kylfinginn Mikko Ilonen en endaði þó uppi sem sigurvegari, 2/1. Þá sigraði Svíinn Peter Hanson hinn vinsæla bandaríska kylfing Dustin Johnson nokkuð örugglega 4/3.Svíinn Henrik Stenson er efsti kylfngurinn á heimslistanum sem tekur þátt í mótinu.Vísir/APÍ Bobby Jones riðlinum unnu Bandaríkjamennirnir Brandt Snedeker og Webb Simpson sína leiki en þeir eru báðir miklir félagar og þurfa að mæta hvor öðrum í 32 manna úrslitum. Þá hafði Svíinn Henrik Stenson, sem átti magnað tímabil í fyrra og halaði inn yfir 20 milljón dollurum í verðlaunafé, betur gegn tælenska kylfingnum Kiradech Aphibarnrat í mjög spennandi leik 2/1. Í Ben Hogan riðlinum voru nokkrir áhugaverðir leikir en þar ber hæst að nefna að bandaríska ungstirnið, Rickie Fowler, sigraði Bretann litríka, Ian Poulter 2/1. Þá gerði Bandaríkjamaðurinn Harry English sér lítið fyrir og valtaði yfir Lee Westwood 5/3 á meðan að Sergio Garcia lagði Marc Leishman í æsispennandi bráðabana sem endaði ekki fyrr en á 22. holu. Frammistaða Rory McIlroy vakti þá einnig athygli en hann vann hinn högglanga Boo Weekley 3/2.McIlroy bjartsýnnÞað er óhætt að segja að McIlroy sé líklegur til afreka um helgina en í viðtali við Golf Channel eftir hringinn sagðist Norður-Írinn vera í góðu formi. „Á þessum velli er mikið forskot að vera langur og beinn af teignum og ég hef verið það undanfarnar vikur. Vonandi heldur það áfram og þá veit maður aldrei hvað getur gerst um helgina, mér líður vel úti á vellinum í augnablikinu.“ Hér fyrir neðan má sjá alla leikina í 32 manna úrslitum en á morgun hefst útsending frá öðrum degi þessa æsispennandi móts klukkan 18:00 á Golfstöðinni.Matt Kuchar á titil að verja.Vísir/APÍ Bobby Jones riðlinum mætast: Henrik Stenson og Luis Oosthuizen Brandt Snedeker og Webb Simpson Jason Day og Billy Horschel George Coetzee og Patrick ReedÍ Ben Hogan riðlinum mætast: Rory Mcilroy og Harry English Charl Schwartzel og Jim Furyk Sergio Garicia og Bill Haas Rickie Fowler og Jimmy WalkerÍ Sam Snead riðlinum mætast: Richard Sterne og Hunter Mahan Graeme McDowell og Hideki Matsuyama Peter Hansons og Victor Dubuisson Bubba Watson og Jonas BlixtÍ Gary Player riðlinum mætast: Ernie Els og Justin Rose Jason Dufner og Matteo Manassero Matt Kuchar og Ryan Moore Jordan Spieth og Thomas Björn Öll úrslit má sjá hér.Jason Dufner er spáð góðu gengi.Vísir/AP
Mest lesið Bein útsending: Búin að hlaupa í tvo sólarhringa Sport Sárþjáð Mari með tárin í augunum en neitar að gefast upp Sport „Hefði látið Elías Inga blása og er ekki viss um að hann hefði fengið keyra heim“ Íslenski boltinn Lætin í Kórnum: Rúnar tók ekki í höndina á Ómari og húfan slegin af honum Íslenski boltinn Arnar Gunnlaugsson í banni í úrslitaleiknum Fótbolti Sýnir ólíkum skoðunum á komu Arons skilning: „Treysti Aroni hundrað prósent“ Handbolti Fékk sér tattú með nafni dóttur sinnar sem hann á svo ekki Fótbolti Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Aron orðinn leikmaður Veszprém á ný Handbolti „Þegar hann nálgast ákveðnar grensur þá er mér ekkert sama“ Sport Fleiri fréttir Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Guðrún Brá í góðri stöðu eftir sinn besta árangur Berbrjósta kylfusveinar fagna sigri á kvennagolfmóti Tiger í enn eina bakaðgerðina Perla keppti með þeim bestu í Solheim-bikar ungmenna Íslenskum kylfingum fjölgaði um tvö þúsund Setti soninn sinn ofan í bikarinn Gagnrýndi mótafyrirkomulagið en vann síðan 3,5 milljarða Náði lengsta pútti sögunnar Sjá meira