Tíska og hönnun

Vivienne Westwood hannar brúðarkjól Svínku

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fatahönnuðurinn Vivienne Westwood hannar ýmsan fatnað fyrir Svínku í kvikmyndinni Muppets Most Wanted sem frumsýnd er í mars. 

Vivienne hannar til dæmis jakka og blúndukjól en mikilfenglegasta dressið er brúðarkjóll sem Svínka mun klæðast þegar hún gengur að eiga Kermit frosk.

„Vivienne Westwood er stórkostleg eins og ég. Hún var spennt og ég var spennt þegar ég bað hana um að hanna brúðarkjól fyrir nýju myndina,“ segir Svínka í fréttatilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×