Formúla 1

Massa er ánægður með Williams-bílinn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Felipe Massa
Felipe Massa Vísir/Getty
Felipe Massa er ánægður með afrakstur æfinganna í Jerez. Hann segir að bíllinn sé góður. Massa ekur nú fyrir Williams eftir að hafa ekki endurnýjað samning sinn við Ferrari í lok síðasta tímabils. Brasilíumaðurinn er bjartsýnn fyrir komandi tímabil.

Massa segir að mikilvægt sé að byrja vel, sérstaklega þegar svona mikið er að breytast. Williams-liðið tók honum fagnandi enda reynslumikill ökumaður, sem hóf keppni í Formúlu 1 árið 2002 með Sauber liðinu. Massa segist vera uppfullur af nýrri orku og líður vel hjá nýju liði.

Hann vill þó fara varlega í yfirlýsingar og segist hlakka til að sjá hvar Williams-bíllinn stendur í samanburði við aðra. Massa telur mikilvægt að vera hjá jákvæðu metnaðarfullu liði eins og Williams.  

Felipe Massa var liðsfélagi Michael Schumacher hjá Ferrari 2006. Honum berast daglegar fréttir af líðan Schumacher og hann biður líka fyrir bata Schumacher á hverjum degi. Þeir urðu nánir vinir á meðan þeir voru liðsfélagar og hafa haldið tengslum síðan.



Bílinn hans Felipe Massa.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×