Femínismi er meira en Hildur Lilliendahl

„Femínistar eru mjög leiðir yfir þessu. Þetta setur ekki strik í reikning fyrir þá. Þeir hætta ekkert að vera femínistar. Femínistar eru líka eins misjafnir og þeir eru margir. Femínismi er miklu meira en bara Hildur Lillendahl. Það eru ekki bara einn eða tveir femínistar til, þeir eru þúsundir.“
„Hildur hefur aldrei tekið á sig ábyrgðarhlutverk fyrir femínista. Hún er í sinni baráttu og hefur gert góða hluti þar,“ segir Steinunn Rögnvaldsdóttir talskona Femínistafélags Íslands í viðtali við Vísi.
Fréttir um Hildi Lilliendahl Viggósdóttir hafa gengið eins og eldur um sinu á netheimum. Hildur eins og margir vita hefur barist á móti netníði og þá sértaklega gagnvart konum.
Hafdís Huld söngkona kom fram í Kastljósi í gær og birti þar gróf ummæli sem Hildur hafði um söngkonuna á árunum 2009 og 2010. Þegar Hafdís ætlaði að kæra ummælin til lögreglu voru liðin tvö ár og of seint fyrir hana að kæra. Frá því í gær hafa verið talin til mörg harkaleg ummæli um ýmsa þjóðþekkta einstaklinga.
„Þetta sýnir það kannski einmitt að það sem þú setur á internetið er þar áfram og fer ekkert. Það er eins gott að passa sig. Fyrst og fremst á fólk ekkert að segja svona hluti, hvort sem þeir verða uppgötvaðir eða ekki,“ segir Steinunn.
„ Þetta dæmir á engan hátt baráttuna sem Hildur stendur fyrir, baráttan er mikilvæg. Við femínstar erum á móti netníði. Baráttan hefur vakið fólk til umhugsunar um orðræðu sem er mikilvæg fyrir okkur öll.“
Tengdar fréttir

Hildur: Búin að eyða alltof mörgum klukkutímum í svekkelsi og fýlu
Hildur Sigurðardóttir og félagar hennar í kvennaliði Snæfells tóku við deildarmeistaratitlinum í kvöld eftir 27 stiga sigur á Njarðvík, 87-60, í Stykkishólmi. Snæfellskonur rifu sig upp eftir tapið í bikaúrslitaleiknum á laugardaginn og unnu sannfærandi sigur.

„Hefði aldrei fengið þessa viðurkenningu“
"Við hjá Stígamótum erum vissulega mjög leiðar yfir þessu og urðum fyrir miklum vonbrigðum,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, í samtali við Vísi í kvöld.

Snæfell fékk afhentan bikarinn í Hólminum | Myndir
Snæfell fékk afhentan deildarmeistarabikarinn á heimavelli í kvöld. Snæfell vann þá öruggan sigur á Njarðvík en liðið hafði þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn.

Hildur bað um að Hlín Einarsdóttir yrði barin
Hildur Lilliendahl fór þess á leit á bloggsíðu sinni árið 2010 að einhver myndi "berja“ Hlín Einarsdóttur, ritstjóra bleikt.is, fyrir skrif sín.

„Aldrei haldið því fram að ég sé einhver engill“
Hildur Lilliendahl segir málið slitið úr samhengi og að hennar hlið hafi ekki fengið að koma nægjanlega vel fram í umfjöllun Kastljóss

Sagði lýtalækni réttdræpan
Notandinn NöttZ á bland.is sagði að nafngreindur lýtalæknir væri „mella“ sem ætti að berja og væri réttdræp.

„Myndirðu nauðga Hafdísi Huld með tjaldhæl?“
Hildur Lilliendahl og maður hennar hafa gengist við að hafa viðhaft gróft persónuníð í garð söngkonunnar Hafdísar Huld. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld.