Formúla 1

Ron Dennis snéri aftur til að sigra keppnir

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ron Dennis ræðir við Martin Whitmarsh
Ron Dennis ræðir við Martin Whitmarsh Vísir/Getty
Síðasta tímabil var það versta fyrir McLaren síðan árið 1980. Þetta leiddi til þess að keppnisstjóri liðsins, Martin Whitmarsh var tekinn út úr liðinu. Óljóst er hver örlög hans verða hjá McLaren. Hann virðist ekki hafa verið rekinn heldur hugsanlega verið fengið annað hlutverk innan liðsins.

Ron Dennis hefur ákveðið að taka aftur við stjórnartaumunum hjá liðinu. Sjálfur ætlar hann þó ekki að vera keppnisstjóri. Hann hefur ráðið Eric Boullier, sem áður var hjá Lotus, til að vera keppnisstjóri.

Ron Dennis segist kominn aftur til að sigra keppnir. Hvorugur ökumaður liðsins komst á verðlaunapall á síðasta tímabili.

Dennis segir að liðið sé með bestu mögulegu vélina. McLaren notast við Mercedes vél á þessu tímabili. Bíllinn virðist góður líka. Honum lýst einnig mjög vel á ökumenn liðsins, Jenson Button og nýliðann Kevin Magnussen.

„Ég trúi því að við munum vinna keppnir í ár“ segir Ron Dennis. Hann bætir við „Hversu margar? Ég veit það ekki. Hversu snemma? Ég veit það ekki.“ Að lokum segir hann „Ef allir deila minni ástríðu, ákefð og einbeitingu, munum við hiklaust sigra“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×