Sport

Meintur raðnauðgari rekinn frá NFL Network

Sharper (fyrir miðju) í réttarsal í síðasta mánuði.
Sharper (fyrir miðju) í réttarsal í síðasta mánuði. vísir/getty
Talsmaður sjónvarpsstöðvar NFL-deildarinnar, NFL Network, staðfesti í dag að stöðin væri búin að reka Darren Sharper, fyrrum leikmann í deildinni.

Sharper er sagður vera raðnauðgari en hann er grunaður um níu nauðganir í fimm fylkjum Bandaríkjanna.

Hann gaf sig fram við lögregluna síðasta fimmtudag og verður réttað yfir honum á næstunni.

Sharper, sem lék með New Orleans, Green Bay og Minnesota, á ferlinum neitar öllum ásökunum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×