Sport

Magnús og Guðrún Íslandsmeistarar í borðtennis - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún G. Björnsdóttir vann Íslandsmeistaratitilinn í fimmta sinn.
Guðrún G. Björnsdóttir vann Íslandsmeistaratitilinn í fimmta sinn. Vísir/Daníel
Magnús K. Magnússon úr Víkingi og Guðrún G. Björnsdóttir úr KR urðu í dag Íslandsmeistarar í einliðaleik í borðtennis en Íslandsmótið fór að venju fram í TBR-húsinu.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var í TBR-húsinu og náði þessum myndum hér fyrir ofan og neðan.

Magnús er fyrsti Íslandsmeistarinn í tvo áratugi sem heitir ekki Guðmundur  

Stephensen en Guðmundur var búinn að vinna alla Íslandsmeistara titla frá árinu 1994. Það var kannski vel við hæfi að Magnús tæki við enda hafa þeir unnið tvíliðaleikinn saman undanfarin sex ár.

Þetta er því að sjálfsögðu fyrsti Íslandsmeistaratitill Magnúsar sem  vann  

Davíð Jónsson í úrslitaleiknum 4-0 (11-3, 11-9, 11-9 og 11-6).

Guðrún varð hinsvegar Íslandsmeistari í fimmta sinn á ferlinum en hún vann  

einnig titilinn 2005-2007 og svo árið 2009. Guðrún vann Aldísi Rún Lárusdóttir í úrslitaleknum 4-1 (11-9, 11-5, 7-11, 13-11 og 11-8).

Magnús K. Magnússon og Lilja Rós Jóhannesdóttir úr Víkingi urðu  

Íslandsmeistarar í tvenndarleik eftir sigur gegn Davíð Jónssyni og Aldísi Rún  

Lárusdóttur úr KR í úrslitaleik 3-1 (8-11, 11-7, 11-6, 11-8). Þetta var fyrsti  

Íslandsmeistaratitill Magnúsar í tvenndarkeppni en Lilja sigraði árið 2001 og  

1997.

Íslandsmeistarar í Tvíliðaleik karla urðu Magnús Finnur Magnússon úr Víkingi og Davíð Jónsson úr KR eftir 3–2 sigur í úrslitaleik gegn Víkingunum Magnúsi K. Magnússyni og Daða F. Guðmundssyni  (8–11, 5–11, 12–10, 11–8 og 11–9).

 

Íslandsmeistarar í Tvíliðaleik kvenna urðu þær Lilja Rós Jóhannesdóttir og Eva Jósteinsdóttir úr Víkingi en þær unnu þær Kolfinnu Bjarnadóttur úr HK og  

Sigrúnu Tómasdóttur úr KR 3-0 í úrslitaleiknum (11–8, 11–4 og 11–8).

Úrslit í Meistaraflokkunum á Íslandsmótinu voru eftirfarandi:

 

Meistaraflokkur karla:  

1.  Magnús Kristinn Magnússon  Víkingur

2.   Davíð Jónsson  KR

3-4.  Jóhannes B. Tómasson BH

3-4.  Kári Mímisson  KR

 

Meistaraflokkur kvenna:  

1.   Guðrún G Björnsdóttir  KR

2.  Aldís Rún Lárusdóttir  KR

3-4.  Eva Jósteinsdóttir  Víkingur

3-4.  Kolfinna Bjarnadóttir  HK

 

Tvenndarkeppni:  

1.  Magnús Kristinn Magnússon og Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingur

2.  Davíð Jónsson/Aldís Rún Lárusdóttir  KR

3-4.  Daði F. Guðmundsson/Eva Jósteinsdóttir  Víkingur

3-4. Gunnar S. Ragnarsson/Guðrún G Björnsdóttir KR

 

Tvíliðaleikur karla:  

1.  Magnús Finnur Magnússon/Davíð Jónsson  Víkingur/KR

2.  Magnús Kristinn Magnússon/Daði F. Guðmundsson Víkingur

3-4.  Kjartan Briem/Ingólfur Ingólfsson  KR

3-4.  Einar Geirsson/Kári Mímisson  KR

 

Tvíliðaleikur kvenna:

1.  Lilja Rós Jóhannesdóttir/Eva Jósteinsdóttir  Víkingur

2.  Kolfinna Bjarnadóttir/Sigrún Tómasdóttir  HK/KR

3-4.  Guðrún G Björnsdóttir/Aldís R. Lárusdóttir  KR

3-4. Guðrún Gestsdóttir/Ásta Urbancic  KR

Vísir/Daníel
Vísir/Daníel
Vísir/Daníel
Vísir/Daníel
Vísir/Daníel
Vísir/Daníel
Vísir/Daníel
Magnús K. Magnússon úr Víkingi var Íslandsmeistari í einliðaleik karla.Vísir/Daníel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×