2.600 Íslendingar hafa sótt sér AUR Samúel Karl Ólason skrifar 25. mars 2014 10:47
Dreifing á íslensku rafmyntinni Auroracoin hófst í nótt, en hún mun í raun standa yfir næsta árið. Auroracoin er hugarfóstur manns, sem gengur undir dulnefninu Baldur Friggjar Óðinsson. Hann segir myntina vera tækifæri til að segja skilið við verðbólgu, gjaldeyrishöft og gengisfellingu hins hefðbundna fjármagnskerfis. Ávarp Baldurs til Íslendinga vegna dreifingarinnar má sjá hér. Dreifingin fór nú ekki áfallalaust af stað og hrundi síðan skömmu eftir miðnætti vegna álags og hefur ekki komið aftur upp. Nú er mögulegt að sækja sinn skammt á Auroracoin.org. Til að fá 31,8 AUR þarf íslenska kennitölu og staðfesta á sér auðkenni í gegnum síma eða Facebook. Auroracoin byggir á Litecoin, sem er einskonar afkomandi Bitcoin. Það sem aðgreinir Auroracoin einnig frá Bitcoin og Litecoin er að helmingur alls mögulegs peningamagns í kerfinu hefur þegar orðið til. Þeir peningar hafa orðið til eru í vörslu Baldurs, en hann er nú að dreifa því til Íslendinga. Heildarfjármagn Auroracoin er 21 milljón en 10,5 milljónir eru nú til dreifingar til Íslendinga. Þá upphæð tók Baldur og deildi með 330.000 þúsund, sem samsvarar 31,8 AUR. Eftir fjóra mánuði verður upphæðinni sem ekki var sótt, deilt niður á fjölda þeirra sem sóttu í fyrstu umferðinni. Þá verður dreifingin endurtekin og aðeins þeir sem sóttu í fyrstu umferð geta sótt aftur. Leikurinn verður svo endurtekinn í annað sinn. Þannig gerir Baldur ráð fyrir að dreifingin muni taka tólf mánuði. Efst í fréttinni má sjá frétt Stöðvar 2 um myntina frá því í gær, þegar Kjartan Hreinn Njálsson ræddi við Jóhann Eiríksson,talsmann Auroracoin. Seðlabankinn og fjórar aðrar stofnanir vöruðu við notkun Auroracoin í síðustu viku, eins og Vísir sagði frá. Sú aðvörun snerist að mestu um að gildandi lög á Íslandi verndi neytendur ekki gegn tapi á sýndarfé, til dæmis ef „markaðstorg“ sem skiptir eða varðveitir sýndarfé bregst skyldum sínum, eða greiðsla misferst. Baldur telur líklegt að notkun myntarinnar muni aukast jafnt og þétt með tímanum og að jafnvægi muni nást á gengið. Hér má fylgjast með gengi myntarinnar. Hér verður mögulegt að fylgjast með hverjir taka við myntinni og hvað sé hægt að kaupa með Auroracoin. Þó er, enn sem komið er, ekkert komið inn á þessa síðu. Hér að neðan er hægt að sjá umfjöllun um Auroracoin á Twitter og hafa þó nokkrir Íslendingar sagt frá því að þeir hafi sótt sér AUR.Tweets about '#Auroracoin OR #AuroracoinIS'
Tengdar fréttir Auroracoin dreift til allra Íslendinga Allir 330.000 Íslendingar munu fá gefins hluta nýju rafmyntarinnar Auroracoin, þann 25. mars. 6. febrúar 2014 16:35 Seðlabankinn varar við sýndarfé Fellur út fyrir lagaramma um gjaldmiðla hér á landi og sveiflast mjög í verði. 19. mars 2014 16:36 Nýr rafeyrir að nafni Auroracoin er öllum Íslendingum fáanlegur frá miðnætti Vefsíðan lá niðri á miðnætti vegna mikillar umferðar. 24. mars 2014 00:01 Íslensk rafmynt hækkar hratt í verði Virði hinnar nýju rafmyntar, Auroracoin, hefur rokið upp á síðustu dögum og hefur hækkað um tæp 120 prósent síðasta sólarhring. 3. mars 2014 15:48 Nýjum rafrænum gjaldmiðli dreift til Íslendinga Hver og einn mun geta sótt sér um 40 þúsund króna virði af myntinni á næstu fjórum mánuðum. 24. mars 2014 08:00 Mest lesið Fólk eigi ekki að greiða fyrir að nota peninginn sinn Neytendur Forstjórinn sem saumar þjóðbúninginn öll mánudagskvöld Atvinnulíf Loðnubrestur hefur gríðarleg áhrif á samfélagið Viðskipti innlent Þróaði app til að hjálpa fólki í meðferð þegar kerfið brást Neytendur Andlega uppsögnin: „Þetta er ekki sonur minn sko…“ Atvinnulíf Segja verðið betra en í Krónunni, Bónus og Costco Neytendur Einkaþotufyrirtæki með skrautlega sögu svipt starfsleyfi vegna öryggismála Viðskipti innlent Loðnumælingar gefa ekki ástæðu til bjartsýni Viðskipti innlent Innkalla brauð vegna brots úr peru Neytendur „Eins og stundum vanti hvatann hjá stofnunum til þess að vilja hagræða“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Hallur Flosa rekstrarstjóri prentlausna hjá OK Telur furðulegt að „banki allra landsmanna“ veiti ekki íbúðalán í dreifbýli Berglind Una ný forstöðukona Digital Labs hjá Origo Loðnubrestur hefur gríðarleg áhrif á samfélagið Loðnumælingar gefa ekki ástæðu til bjartsýni Þrír nýir eigendur bætast í hópinn Vatnsbúskapurinn fer batnandi Hildur nýr mannauðsstjóri Distica Einkaþotufyrirtæki með skrautlega sögu svipt starfsleyfi vegna öryggismála Norska sjóbjörgunarsveitin semur við íslenskt fyrirtæki Boða til fundar með íbúum Ölfuss um kolefnisförgunarstöð Ari nýr tæknistjóri Fimmti hver leigjandi vildi heldur búa annars staðar Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli Taka jákvætt í kolefnisförgunarstöð í Ölfusi Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Kaffi Kjós til sölu Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg Karen inn fyrir Þórarin Björn Leifsson horfir til Vestmannaeyja Yfirtakan hækkaði gengi krónunnar töluvert Afkoma Arion lengst yfir spám greinenda Þögul sem gröfin um auglýsinguna umdeildu Eftirlitið gefur lítið fyrir yfirlýsingu Styrkáss Erla Ósk ráðin forstöðumaður EMBA náms við HR Fjögur skip hefja leit að loðnu Segir seinkun Hvammsvirkjunar geta þýtt tugmilljarða tekjutap Svigrúm fyrir keppinauta „sem ástunda ekki jafnósvífna verðlagningu“ Sjá meira
Auroracoin dreift til allra Íslendinga Allir 330.000 Íslendingar munu fá gefins hluta nýju rafmyntarinnar Auroracoin, þann 25. mars. 6. febrúar 2014 16:35
Seðlabankinn varar við sýndarfé Fellur út fyrir lagaramma um gjaldmiðla hér á landi og sveiflast mjög í verði. 19. mars 2014 16:36
Nýr rafeyrir að nafni Auroracoin er öllum Íslendingum fáanlegur frá miðnætti Vefsíðan lá niðri á miðnætti vegna mikillar umferðar. 24. mars 2014 00:01
Íslensk rafmynt hækkar hratt í verði Virði hinnar nýju rafmyntar, Auroracoin, hefur rokið upp á síðustu dögum og hefur hækkað um tæp 120 prósent síðasta sólarhring. 3. mars 2014 15:48
Nýjum rafrænum gjaldmiðli dreift til Íslendinga Hver og einn mun geta sótt sér um 40 þúsund króna virði af myntinni á næstu fjórum mánuðum. 24. mars 2014 08:00