Gunnar Nelson þykir sá allra svalasti Jakob Bjarnar skrifar 11. apríl 2014 13:36 Þessir herramenn teljast þeir allra svölustu á Íslandi í dag.
Samkvæmt glænýrri könnun MMR, sem kynnt var á markaðsráðstefnu í Háskólabíó í gær, kemur á daginn að bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson þykir sá svalasti á Íslandi nú um mundir. Honum fylgja svo menn á borð við Jón Gnarr borgarstjóri, Baltasar Kormákur kvikmyndaleikstjóri, Ari Eldjárn skemmtikraftur, Ásgeir Trausti tónlistarmaður og Egill Einarsson, eða Gillz, líkamsræktarfrömuður með meiru. Til óformlegra kannana sem þessara hefur verið efnt með reglubundnum hætti sem einskonar samkvæmisleiks á síðum fjölmiðla en nýtt er að virðulegt markaðsrannsóknarfyrirtæki á borð við MMR leggi út í viðamikla könnun sem þessa. En, í þessari könnun var lagt upp með hvað væri mest „cool“ eða svalast, og þá einkum í því sem snýr að vörumerkjum.Ólafur Gylfason hjá MMR segir að svalasti einstaklingurinn sé hliðarafurð. „Þetta var ekki megintilgangur rannsóknarinnar heldur hliðarafurð sem gegnir þeim tilgangi að skýra út af hverju það kann að vera að fólki finnst tiltekin vörumerki svöl og þá hvaða persónuleika þau tengja við í því samhengi. Hvers konar persóna er vörumerkið?“ Ólafur segir að MMR sé náttúrlega markaðsrannsóknafyrirtæki og þetta sé eitt af lykilhugtökum sem unnið er með í markaðsstarfi. Og í þessu sambandi er einkum litið til þess hvað er ofarlega á baugi í yngri aldurshópum. „Hver eru helstu hugðarefni þeirrar kynslóðar. Við efndum til ráðstefnunnar í samstarfi við við þá Joeri Van den Bergh, sem er Belgi og Mattias Behrer sem er sænskur.“ Þeir hafa rannasakað og skoðað hvernig nálgast skuli þennan mikilvæga hóp en þeir skrifuðu meðal annars bókina „How Cool Brands Stay Hot: Branding to Generation Y“. En, aftur að þeim sem þykja svalastir á Íslandi nú um stundir. Þeir sem einnig komast á blað eru Aron Pálmarsson, Bubbi Morthens, Þorvaldur Davíð, Ólafur Ragnar Grímsson, Skúli Mogensen, Björn Bragi, Helgi Seljan og Hilmar V. Pétursson.
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira