Segir ríg á milli ríkra og fátækra í Grindavík Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2014 10:57 Vísir/Valgarður „
Þetta snýst ekki bara um einhvern einn kennara, þetta er miklu flóknara mál. Það eru sögusagnir um aðra kennara og svo framvegis,“ segir Stefán Karl Stefánsson, fyrrverandi formaður Regnbogabarna. Stefán Karl var gestur í útvarpsþættinum Harmageddon á X-inu í morgun, þar sem hann ræddi um eineltismálið í Grindavík og stöðuna þar. Hann segir bæinn skiptast í tvennt og að taka þyrfti á málinu. Stefán bendir á að bæði fólk sem eigi börn í skólanum núna og fólk sem hafi verið í skólanum hafi sett sig í samband við sig. Umræðan snúist um einn einstakan kennara sem hefur verið að leggja í einelti. „Það hafa verið gerðar óháðar rannsóknir af sálfræðingum og öðrum, sem taka af allan vafa fyrir mér að þarna er um einelti að ræða.“Ekki tekið föstum tökum á málinu „Þetta er, því miður, mjög algengt og einskorðast ekkert við Grindavík. Hann er enn að kenna og tillögurnar sem koma frá skólastjórnendum og skólaskrifstofu Grindavíkurbæjar og jafnvel bæjarstjórinn styður það, er að kennarinn sé færður innar í ganginn. Til að forðast að börnin hitti hann.“ Stefán Karl segir þetta mál vera orðið það alvarlegt að foreldrar hafi verið í strangri baráttu frá því fyrir jól og hafi tekið á það ráð að taka börnin úr skólanum vegna líkamlegra einkenna sem hafi komið í ljós vegna andlegrar vanlíðan barnanna. Hann segist hafa heyrt af öðrum málum sem hafa komið upp í Grunnskóla Grindavíkur, en tekur fram að það sé ekkert meira en í öðrum skólum. „Þar hafa mál leyst bæði farsællega og önnur ekki. Það virðist vera að það sé ekki tekið föstum tökum á málum þarna. Þá er spurningin hvað veldur?“ Stefán Karl segir að innan sveitarfélaga og skóla séu öfl og mikil tengsl á milli fólks og mikil nálægð. „Það kannski veldur því að skólastjórar og stjórnendur hafa ekki kjark til að setja hnefann í borðið og taka á málunum og víkja viðkomandi. Það er engin spurning að það eru lagaheimildir fyrir því. Það á að víkja kennara frá störfum tímabundið, á meðan málið er rannsakað almennilega af barnaverndaryfirvöldum og óháðum aðilum,“ segir Stefán Karl og bætir við: „Reynist það rétt að viðkomandi er að stunda einelti, hvort sem það er ætlun hans eða ekki. Þá á að víkja viðkomandi frá störfum fyrir fullt og allt.“Stéttaskipting eins og hún gerist íslenskust Stefán skýrði frá því að hús fjölskyldu eins fórnarlambs eineltis hefði verið eggjað í nótt. „Það er eins og það sé að brjótast út einhver múgæsing og fólk er að skipta sér í fylkingar. Þetta er það sem gerist í litlu samfélagi þar sem tvö ólík öfl mætast og ég hef heyrt mjög mikið talað um að þeir sem eru ríkir og eiga mikla peninga skipti sér í einn hóp og þeir sem eru á fátækari endanum séu einhverskonar lowlife lið í þeirra augum og þarna sé mikill rígur á milli.“ „Þetta er hlutur sem við sjáum í samfélögum, ekki bara út á landi, heldur í hverfum í Reykjavík líka. Þetta er stéttaskipting eins og hún gerist íslenskust, ef svo má að orði komast.“ Stefán sagði það virðast vera að þeir kennarar sem takist upp á því að níðast á börnum yfir höfuð, ráðist á veikasta hlekkinn í bekknum. „Þetta eru krakkar með einhvers konar greiningu jafnvel, lesblindu, það er mjög algengt að krakkar sem eru með hana verði fyrir svona fólki.“ Aðspurður hvort hann geti komið með dæmi um hvernig kennarinn hafi lagt börn í einelti segir Stefán: „Það virðist vera að nemandi sem sé lesblindur er látinn standa upp og lesa fyrir bekkinn. Það er verið að gera grín að viðkomandi fyrir það og svo framvegis.“ Stefán segir þetta ekki vera fyrsta málið sem hann hafi tekið að sér að aðstoða í og bendir á mál ekki alls fyrir löngu í Vesturbæjarskóla þar sem það hafi tekið tvö ár að víkja kennara tímabundið frá störfum vegna gruns um einelti.Skorar á stjórnvöld og skólastjóra „Ég vil bara hvetja yfirvöld, Menntamálaráðuneytið, til að leggja niður kaffibollann og drífa sig til Grindavíkur, setja hnefann í borðið og segja stopp hér. Málið er orðið mjög alvarlegt í bæjarfélaginu. Bærinn er farinn að skiptast, sýnilega eins og eggjakastið sýnir, upp í tvær fylkingar. Með og á móti, en þarna standa börn í milli og eru að verða vitni að þessu,“ segir Stefán Karl. „Ég hef ekki fengið neina vitneskju um það og ekki foreldrar barnanna heldur, né nokkur annar,“ segir Stefán Karl, spurður hvort hann viti til þess að Menntamálaráðuneytið sé með eitthvað á prjónunum í þessu máli. „Skólinn þegir eins og gröfin og segir ekki neitt.“ „Skólastjórinn hefur alræðisvald í skólanum, svo það sé algerlega á hreinu, svo framarlega sem hann fylgir lögum og svo framvegis. Þessi skólastjóri verður oft að taka mjög erfiðar ákvarðanir en það er starf skólastjóra. Það getur verið mikil nánd og mikill vinskapur, til margra ára og áratuga þess vegna. Engu að síður verður hann að taka þessar ákvarðanir og láta einhver vinasambönd og þrýsting fyrir aftan sig.“ „Skólastjóri Grindavíkurskóla er með gullið tækifæri í höndunum. Þetta er komið í fjölmiðla, það vita allir að þessu og augun beinast að þessum skóla og því hvernig honum er stjórnað. Hann er með gullið tækifæri í höndunum til að snúa við blaðinu í þessu bæjarfélagi,“ segir Stefán Karl og bætir við: „Ég skora á skólastjórann að grípa til sjálfstæðra aðgerða, því ég veit að skólastjórinn er að vinna gegn sinni sannfæringu í þessu máli.“Allt viðtalið má hlusta á hér að ofan.
Tengdar fréttir Einelti kennara í Grindavík: Nemendur hættir að mæta í skólann Tvær formlegar kvartanir hafa borist skólayfirvöldum vegna kennarans og hafa þær verið til rannsóknar hjá sálfræðingum. Fimmtán nemendur hafa skrifað undir harðorða yfirlýsingu til bæjaryfirvalda þar sem minnst sé á einelti, ofbeldi og þöggun frá fyrri tíð. 4. apríl 2014 19:03 Fyrrverandi nemandi í Grunnskóla Grindavíkur: Skólagangan einkenndist af hræðslu og kvíða "Ég hélt að skólinn ætti að vera undirbúningur fyrir lífið og byggja mann upp. Í mínu tilfelli var það að brjóta mig niður fyrir lífið. Ég átti aldrei séns.“ 9. apríl 2014 10:41 „Þeir settu mig í ruslatunnu sem var við leikskólann í Grindavík og pissuðu yfir mig“ Brynhildur Ólafsdóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir skólagöngu sína í Grunnaskóla Grindavíkur en hún segir sögu sína um einelti sem hún varð fyrir í bæjarfélaginu í pistli sínum. 21. apríl 2014 10:04 Grindavíkurbær sendir frá sér yfirlýsingu vegna eineltismáls Skólastjóri hefur gripið til ráðstafana sem tryggja að nemendur og kennarinn séu ekki í neinum samskiptum í skólanum. 17. apríl 2014 07:00 „Áhrif eineltisins á andlega heilsu barna okkar eru gríðarleg“ Foreldrar barna sem hafa sætt einelti og annarri ámælisverðri hegðun af hálfu kennara sem starfar í Grunnskóla Grindavíkur hafa sent frá sér nokkrar athugasemdir vegna þeirrar meðferðar sem málið hefur hlotið. 21. apríl 2014 14:51 Undirskriftarlisti til stuðnings kennara sem hefur verið sakaður um einelti 26 hafra skrifað undir en lsitinn var opnaður fyrir þremur dögum. 15. apríl 2014 14:08 Einelti í Grindavík: Skólastjórinn leitar sátta „Ég held stundum að skólastjórinn sé að reyna að snúa dæminu við, eins og ég og barnið mitt höfum gert eitthvað af okkur en ekki kennarinn.“ 11. apríl 2014 14:23 Eggjum kastað í hús eineltisfórnarlambs í Grindavík Uppnám er í Grindavík í kjölfar umræðu um einelti af hendi grunnskólakennara í bænum. 22. apríl 2014 09:29 Mest lesið Mexíkó og Kanada svara tollum Trump með sínum eigin Erlent Sakar Helgu um „helvítis lygar“ Innlent Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Veður Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Þung staða og „ekki hægt að útiloka“ verkföll í fyrramálið Innlent Grænlendingar í sókn frekar en vörn þökk sé Trump Innlent Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Hættir sem formaður Siðmenntar Innlent Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Innlent Óbreytt staða í Karphúsinu Innlent Fleiri fréttir Óbreytt staða í Karphúsinu Hættir sem formaður Siðmenntar Sakar Helgu um „helvítis lygar“ Um 500 nýjar íbúðir byggðar í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Grænlendingar í sókn frekar en vörn þökk sé Trump Þung staða og „ekki hægt að útiloka“ verkföll í fyrramálið Hvað þýðir tollastríð Trumps fyrir Ísland? Hagræðingartillögur, styrkir til flokkanna og Grænland á Sprengisandi Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Ógnaði fólki með barefli í bænum Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Klakastykki stórskemmdi bíl Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Ærandi þögn í Karphúsinu, fangaskipti og biðlistar sem lengjast Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Loðnuleitin skilaði enn lægri mælingu og engar veiðar ráðlagðar Annasamt hjá björgunarsveitum vegna ofsaveðurs Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Óskandi að hægt væri að ljúka deilunni í dag Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Baráttukonur minnast Ólafar Töru Bæjarskrifstofur og heimili rýmd „Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Stórir pollar leika bílstjóra grátt Hellisheiði opin á ný Sjá meira
Einelti kennara í Grindavík: Nemendur hættir að mæta í skólann Tvær formlegar kvartanir hafa borist skólayfirvöldum vegna kennarans og hafa þær verið til rannsóknar hjá sálfræðingum. Fimmtán nemendur hafa skrifað undir harðorða yfirlýsingu til bæjaryfirvalda þar sem minnst sé á einelti, ofbeldi og þöggun frá fyrri tíð. 4. apríl 2014 19:03
Fyrrverandi nemandi í Grunnskóla Grindavíkur: Skólagangan einkenndist af hræðslu og kvíða "Ég hélt að skólinn ætti að vera undirbúningur fyrir lífið og byggja mann upp. Í mínu tilfelli var það að brjóta mig niður fyrir lífið. Ég átti aldrei séns.“ 9. apríl 2014 10:41
„Þeir settu mig í ruslatunnu sem var við leikskólann í Grindavík og pissuðu yfir mig“ Brynhildur Ólafsdóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir skólagöngu sína í Grunnaskóla Grindavíkur en hún segir sögu sína um einelti sem hún varð fyrir í bæjarfélaginu í pistli sínum. 21. apríl 2014 10:04
Grindavíkurbær sendir frá sér yfirlýsingu vegna eineltismáls Skólastjóri hefur gripið til ráðstafana sem tryggja að nemendur og kennarinn séu ekki í neinum samskiptum í skólanum. 17. apríl 2014 07:00
„Áhrif eineltisins á andlega heilsu barna okkar eru gríðarleg“ Foreldrar barna sem hafa sætt einelti og annarri ámælisverðri hegðun af hálfu kennara sem starfar í Grunnskóla Grindavíkur hafa sent frá sér nokkrar athugasemdir vegna þeirrar meðferðar sem málið hefur hlotið. 21. apríl 2014 14:51
Undirskriftarlisti til stuðnings kennara sem hefur verið sakaður um einelti 26 hafra skrifað undir en lsitinn var opnaður fyrir þremur dögum. 15. apríl 2014 14:08
Einelti í Grindavík: Skólastjórinn leitar sátta „Ég held stundum að skólastjórinn sé að reyna að snúa dæminu við, eins og ég og barnið mitt höfum gert eitthvað af okkur en ekki kennarinn.“ 11. apríl 2014 14:23
Eggjum kastað í hús eineltisfórnarlambs í Grindavík Uppnám er í Grindavík í kjölfar umræðu um einelti af hendi grunnskólakennara í bænum. 22. apríl 2014 09:29