Tónlist

Tileinkuðu Mick Jagger lagið Fix You

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin Coldplay tróð upp í New York í gærkvöldi og tileinkuðu rokkaranum Mick Jagger lagið Fix You.

„Þetta er fyrir Mick Jagger,“ sagði söngvari sveitarinnar, Chris Martin áður en þeir spiluðu lagið.

Minningarathöfn um L'Wren Scott, kærustu Mick Jagger, var haldin fyrir helgi í New York en hún framdi sjálfsmorð í íbúð sinni á Manhattan fyrr á árinu.

Coldplay gefur út plötuna Ghost Stories þann 19. maí og endaði tónleikana í gærkvöldi á nýrri útgáfu af True Love og bað Chris Martin gesti vinsamlegast um að taka það ekki upp og setja það á YouTube.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.