Pastor Maldonado, ökumaður Lotus telur að liðið geti náð einu af fimm efstu sætunum í spænska kappakstrinum. Hann segir að bíllinn geti það ef hann bilar ekki eða lendir í óhappi.
Lotus hefur enn ekki náð í stig á tímabilinu, því er markmið Maldonado frekar háleitt. Venezúelabúinn er þó viss um getu bílsins.
„Ég reikna með að vera samkeppnishæfari,“ sagði Maldonado.
„Það er mjög mikilvægt að fara að ná í stig, en ef allt gengur eftir og með smá heppni þá er topp fimm möguleiki,“ hélt Maldonado áfram.
„Það er mikilvægt vegna þess að liðið og ökumennirnir eru vanir að ná í mikið af stigum. Enn mikilvægara því það mun auka sjálfstraustið í öllu liðinu og það mun vera okkur til góðs að hafa meira af því og við getum notað það,“ sagði Maldonado að lokum.
Lotus þarf að sanna getu sína, bíllinn virðist vera yfir meðallagi góður en vélin frá Renault hefur verið að valda liðinu vandræðum. Það verður erfiðara að halda styrktaraðilum og fá þannig fjármagn sem þarf til að reka liðið eftir því sem stigin láta bíða lengur eftir sér.
