Formúla 1

Hamilton kom fyrstur í mark á Spáni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton náði að verjast Rosberg í dag.
Hamilton náði að verjast Rosberg í dag. Vísir/Getty
Eftir spennandi keppni hafði Lewis Hamilton betur gegn liðsfélaga sínum hjá Mercedes, Nico Rosberg sem reyndi hvað hann gat en allt kom fyrir ekki. Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Eftir seinni þjónustuhlé Mercedes manna hóf Rosberg árás á Hamilton. Síðustu tíu hringir keppninnar voru virkilega spennandi. Enda hugsanlegt að heimsmeistarakeppni ökumanna ráðist á innanbúðar baráttu Mercedes manna.

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel fór hamförum eftir að hafa ræst í 15. sæti sökum 5 sæta refsingar. Það þurfti af skipta um gírkassa eftir tímatökuna. Vettel sýndi hvers hann er megnugur og endaði í 4. sæti.

Ferrari ökumennirnir börðust sín á milli alla keppnina, Fernando Alonso hafði að lokum betur gegn Kimi Raikkonen. Alonso var á ferskari dekkjum og nýtti sér gripmuninn til að taka fram úr Raikkonen.

Hamilton fagnaði í lok keppninnar en viðurkenndi að Rosberg hefði verið betri í dag.Vísir/Getty
„Nico var fljótari í dag, ég átti erfitt með að finna jafnvægið. Nico var yfir allt fljótari þessa helgi en sem betur fer náði ég að halda honum fyrir aftan mig,“ sagði Hamilton eftir keppnina.

„Ég þurfti einn hring í viðbót til að ná honum, þá hefði ég virkilega látið á það reyna,“ sagði Rosberg á verðlaunapallinum.

„Þeir (Mercedes) eru langt á undan og viðburðalítil keppni var alltaf það sem við vildum þar sem ég byrjaði í þriðja sæti og vildi halda því. Ég veit ég fæ að halda því í þetta skipti,“ sagði Ricciardo eftir að hafa tryggt sér sitt fyrsta verðlaunasæti í Formúlu 1, sem hann fær að halda. Hann endaði líka í þriðja sæti í Ástralíu en var dæmdur úr keppni þar.

„Liðið gerði eins og það gat, við enduðum í þriðja og fjórða sæti. Við komum aftur í næstu keppni og reynum aftur að ná Mercedes,“ sagði Vettel eftir keppnina.

Maldonado hefur fengið enn einn punktinn á leyfið sitt. Hann er nú kominn með 4 punkta í fimm keppnum. Tólf punktar myndu gera það að verkum að hann yrði í banni í eina keppni.

Grosjean náði í fyrstu stig Lotus liðsins á tímabilinu í dag.Vísir/Getty
Eftir keppnina er Hamilton orðinn efstur í heimsmeistarakeppni ökumanna. Hamilton er með 100 stig, Rosberg er annar með 97 stig og Alonso er þriðji með 49 stig.



Romain Grosjean náði í fyrstu stig Lotus á tímabilinu.

1.Lewis Hamilton - Mercedes - 25 stig

2.Nico Rosberg - Mercedes - 18 stig

3.Daniel Ricciardo - Red Bull - 15 stig

4.Sebastian Vettel - Red Bull - 12 stig

5.Valtteri Bottas - Williams - 10 stig

6.Fernando Alonso - Ferrari - 8 stig

7.Kimi Raikkonen - Ferrari - 6 stig

8.Romain Grosjean - Lotus - 4 stig

9.Sergio Perez - Force India - 2 stig

10.Nico Hulkenberg - Foce India - 1 stig

11.Jenson Button - McLaren

12.Kevin Magnussen - McLaren

13.Felipe Massa - Williams

14.Daniil Kvyat - Toro Rosso

15.Pastor Maldonado - Lotus

16.Esteban Gutierrez - Sauber

17.Adrian Sutil - Sauber

18.Jules Binachi - Marussia

19.Max Chilton - Marussia

20.Marcus Ericsson - Caterham

Kamui Kobayashi - Caterham - hætti vegna bremsubilunar

Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - hætti vegna pústkerfisbilunar



Næsta keppni tímabilsins er hinn rómaði Mónakó kappakstur sem fer fram 25. maí. 


Tengdar fréttir

Hamilton nánast fullkominn

Lewis Hamilton ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína í Formúlu 1 það sem af er tímabili en hann er búinn að vinna þrjár síðustu keppnir eftir að klára ekki þá fyrstu.

Hamilton vill forðast fleiri einvígi við Rosberg

Lewis Hamilton segir að hann geri allt í sínu valdi til að tryggja að einvígi á milli hans og Nico Rosberg, liðsfélaga hans endurtaki sig ekki. Mikil spenna myndaðist á milli þeirra í Bahrain en þar hafði Hamilton betur eftir talsverðar hrókeringar.

Lewis Hamilton á ráspól á Spáni

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni fyrir spænska kappaksturinn fór fram á Barcelona brautinni í dag. Nico Rosberg varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×