Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól á Spáni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton var fljótastur í dag
Hamilton var fljótastur í dag Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni fyrir spænska kappaksturinn fór fram á Barcelona brautinni í dag. Nico Rosberg varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Fyrir tímatökuna var ljóst að atvik á æfingum í gær myndi kosta Jean-Eric Vergne 10 sæti á ráslínu. Hægra afturdekkið losnaði undan Toro Rosso bíl hans á brautinni.



Pastor Maldonado á Lotus, lenti á vegg strax á fyrsta hring og braut fjöðrunarbúnað og gat ekki tekið meiri þátt í tímatökunni. Ökumannsmistök hans ollu því að rauðum flöggum var veifað og tímatakan stöðvuð til að hægt væri að fjarlægja bíl Maldonado.

Maldonado datt út í fyrstu lotu ásamt Kamui Kobayashi og Marcus Ericsson á Caterham, Jules Bianchi og Max Chilton á Marussia og Adrian Sutil á Sauber.

„Ég veit ekki hvernig en einhvern veginn höfum við gert bílinn verri,“ sagði Hamilton í talstöðinni í fyrstu lotunni.

Það munaði innan við hálfri sekúndu á bílunum í 3. til 16. sæti í fyrstu lotunni.

Ricciardo var bestur á eftir Mercedes mönnum í dagVísir/Getty
Nico Hulkenberg og Sergio Perez á Force India eftir, Daniil Kvyat og Jean-Eric Vergne á Toro Rosso, Esteban Gutierrez á Sauber og Kevin Magnussen á McLaren, sátu eftir að lokinni annarri lotu.

Vélin í bíl Magnussen bilaði og hann gat því ekki sett tíma í annarri lotu.

Þriðja lotan hófst á því að Sebastian Vettel stöðvaði á brautinni og kvartaði yfir því í talstöðinni að hann hefði ekki afl. Rauðum flöggum var veifað aftur og tímatakan stöðvuð tímabundið, meðan Red Bull bíllinn var fjarlægður.







Vettel hefur ekki att góða helgi á SpániVísir/Getty
Niðurstaða tímatökunnar var:

1.Lewis Hamilton - Mercedes

2.Nico Rosberg - Mercedes

3.Daniel Ricciardo - Red Bull

4.Valtteri Bottas - Williams

5.Romain Grosjean - Lotus

6.Kimi Raikkonen - Ferrari

7.Fernando Alonso - Ferrari

8.Jenson Button - McLaren

9.Felipe Massa - Williams

10.Sebastian Vettel - Red Bull - setti ekki tíma

11.Nico Hulkenberg - Force India

12.Sergio Perez - Force India

13.Daniil Kvyat - Toro Rosso

14.Esteban Gutierrez - Sauber

15.Kevin Magnussen - McLaren

16.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - mun ræsa aftastur

17.Adrian Sutil - Sauber

18.Max Chilton - Marussia

19.Jules Bianchi - Marussia

20.Marcus Ericsson - Caterham

21.Kamui Kobayash - Caterham

Pastor Maldonado - Lotus - setti ekki tíma

Keppnin er á dagskrá á Stöð 2 Sport klukkan 11:30.


Tengdar fréttir

Hamilton nánast fullkominn

Lewis Hamilton ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína í Formúlu 1 það sem af er tímabili en hann er búinn að vinna þrjár síðustu keppnir eftir að klára ekki þá fyrstu.

Maldonado: Lotus í topp 5 á Spáni

Pastor Maldonado, ökumaður Lotus telur að liðið geti náð einu af fimm efstu sætunum í spænska kappakstrinum. Hann segir að bíllinn geti það ef hann bilar ekki eða lendir í óhappi.

Hamilton vill forðast fleiri einvígi við Rosberg

Lewis Hamilton segir að hann geri allt í sínu valdi til að tryggja að einvígi á milli hans og Nico Rosberg, liðsfélaga hans endurtaki sig ekki. Mikil spenna myndaðist á milli þeirra í Bahrain en þar hafði Hamilton betur eftir talsverðar hrókeringar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×