Formúla 1

Nico Rosberg vann aftur í Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg hafði betur gegn Hamilton í Mónakó
Rosberg hafði betur gegn Hamilton í Mónakó Vísir/Getty
Þjóðverjinn Nico Rosberg leiddi hvern einasta hring í keppninni eftir að ná ráspól á umdeildan hátt í gær. Liðsfélagi Rosberg hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji. Rosberg vann Mónakó keppnina líka í fyrra.

Öryggisbíllinn var kallaður út á fyrsta hring vegna bíls Sergio Perez, sem lenti á varnarvegg eftir að Perez ók á bíl Jenson Button.

Í endurræsingunni eftir að öryggisbíllinn fór inn komst Kimi Raikkonen fram úr Red Bull bílunum, hann varð þá orðinn þriðji.



Sebastian Vettel hætti keppni á 7. hring í sinni hundruðustu keppni fyrir Red Bull.

Öryggisbíllinn kom út í annað sinn þegar Adrian Sutil missti stjórn á Sauber bíl sínum.

Flestir nýttu sér öryggisbílinn til að skipta um dekk.

Kimi Raikkonen þurfti að koma tvisvar inn meðan öryggisbíllinn stýrði umferðinni.Hann var með sprungið dekk eftir að Marussia bíll ók á Raikkonen. Hann tapaði því þriðja sætinu og kom út í sextánda sæti.

Toro Rosso tókst ekki að skila bíl í mark í keppninni. Jean-Eric Vergne og Daniil Kvyat þurftu báðir að hætta keppni vegna vélabilunar.



Valtteri Bottas stöðvaði á brautinni vegna vélabilunar. Greinilega vantaði kælinguna fyrir vélarnar sem fást á löngum beinum köflum á öðrum brautum.

Þegar Esteban Gutierrez lenti á vegg og hætti keppni færðist Jules Bianchi á Marussia í fyrsta mögulega stigasæti liðsins. Eftir að Raikkonen reyndi að taka fram úr Kevin Magnussen á McLaren.

Bianchi átti frábæran dag og náði í 2 stig.Vísir/Getty
Bianchi tók út refsingu á meðan öryggisbíllinn var úti. Hann fékk þá refsingu fyrir að ræsa af vitlausum stað.

Pastor Maldonado komst ekki af stað í uphitunarhring og það olli ruglingi meðal þeirra sem voru fyrir aftan hann. Þar sem Bianchi tók ekki annað þjónustu hlé varð hann að taka út refsinguna með því að bæta fimm sekúndum við heildar keppnistíma sinn. Það dugði honum í níunda sæti og hann tryggði Marussia þar með fyrstu stig Marussia liðsins.

„Ég náði góðum hraða í dag, það er erfitt að taka fram úr hér,“ sagði Hamilton eftir keppnina. Hann var mjög fámáll.

„Við þorðum ekki að sleppa því að taka fimm sekúndna refsinguna þegar við stoppuðum. Reglurnar eru frekar óksýrar hvað þetta varðar,“ sagði Graeme Lowdon lisstjóri Marussia liðsins, alsæll með stigin.

Rosberg tjáði sig ekki um ráspólinn, hann talaði um hversu frábært væri að vinna aftur í Mónakó.

Rosberg leiddi alla keppnina í MónakóVísir/Getty
Úrslit keppninnar urðu:

1.Nico Rosberg - Mercedes - 25 stig

2.Lewis Hamilton - Mercedes - 18 stig

3.Daniel Ricciardo - Red Bull - 15 stig 

4.Fernando Alonso - Ferrari - 12 stig

5.Nico Hulkenberg - Force India - 10 stig

6.Jenson Button - McLaren - 8 stig

7.Felipe Massa - Williams - 6 stig

8.Romain Grosjean - Lotus - 4 stig

9.Jules Bianchi - Marussia - 2 stig

10.Kevin Magnussen - McLaren - 1 stig

11.Marcus Ericsson - Caterham

12.Kimi Raikkonen - Ferrari

13.Kamui Kobayashi - Caterham

14.Max Chilton - Marussia

Þeir sem duttu út:

Esteban Gutierrez - Sauber

Valtteri Bottas - Williams

Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

Adrian Sutil - Sauber

Daniil Kvyat - Toro Rosso

Sebastian Vettel - Red Bull

Sergio Perez - Force India

Pastor Maldonado - Lotus - hóf ekki keppni

Rosberg hefur tekið við forystunni af Hamilton í stigakeppni ökumanna með 122 stig, Hamilton er með 118 stig og Fernando Alonso er þriðji með 61 stig.

Bílskúrinn verður á sínum stað á morgun og næsta keppni er 8. júní í Kanada.


Tengdar fréttir

Alonso kom á óvart á æfingum í Mónakó

Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari kom á óvart á seinni æfingu dagsins í Mónakó og setti besta tímann. Tvær æfingar af þremur fyrir keppni helgarinnar fóru fram í dag.

Hamilton stundar ekki sálfræðihernað

Lewis Hamilton ökumaður Mercedes liðsins í Formúlu 1 neitar að hafa stundað sálfræðihernað gegn liðsfélögum sínum með ásettu ráði.

Rosberg á ráspól í Mónakó

Nico Rosberg náði ráspól í mikilvægustu tímatöku tímabilsins. Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji. Brautin í Mónakó er mjög þröng og því erfitt að taka framúr. Þess vegna skiptir tímatakn í Mónakó meira máli en aðrar tímatökur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×