Formúla 1

Framtíð Maldonado í Formúlu 1 óörugg

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Maldonado hefur ekki átt gott tímabil og ekki batnar það ef peningarnir hverfa.
Maldonado hefur ekki átt gott tímabil og ekki batnar það ef peningarnir hverfa. Vísir/Getty
Pastor Maldonado, ökumaður Lotus liðsins, gæti þurft að sanna að hæfilikar hans séu nægir til að tryggja honum ökumannssæti í Formúlu 1. Heyrst hefur að styrktaraðilar hans séu að draga úr framlögum sínum.

Venesúelabúinn fær um það bil 42 milljónir bandaríkjadala (2,8 milljarða króna) árlega frá ríkisrekna olíufyrirtækinu PDVSA. Hann er var því heillandi fyrir mörg lið sem skortir fé.

Nú hefur ráðherra íþróttamála í Venesúela, Antonio Álvarez, tilkynnt að akstursíþróttastyrkit verði færðir í önnur málefni. Maldonado missir þar með sinn stærsta bakhjarl.

„Ég veit að ég mun eignast einhverja óvini, en það fer ekki annar dollari í akstursíþróttir,“sagði Antonio Álvarez.

„Það er ósanngjarnt að nota peninga ríkisins í íþróttir sem ekki stuðla að þróun íþróttamála hér á landi,“ sagði Álvarez.

Hann segir að peningarnir verði nýttir í betri íþróttamannvirki í Venesúela.

Hvort Maldonado tekst að tryggja sér sæti með hæfileika sína eina að vopni er óljóst. Hann hefur átt gríðarlega erfitt uppdráttar undanfarið og alls ekki náð sér á strik í ár. Hápunktur ferilsins er sigurinn í spænska kappakstrinum 2012, fyrir Williams liðið.


Tengdar fréttir

Lotus bíllinn fljótastur við lok æfinga á Spáni

Pastor Maldonado ökumaður Lotus var fljótastur á lokadegi æfinga á Spáni í fyrradag. Maldonado var tæpri sekúndu á undan næsta manni sem var Nico Rosberg á Mercedes. Þeir óku báðir 102 hringi um brautina.

Bílskúrinn: Hvað er að frétta frá Spáni?

Spænski kappaksturinn sem fram fór í gær var fyrir margt áhugaverður. Liðsfélagar glímdu og bílarnir rásuðu mikið um brautina. Mercedes mennirnir skiluðu fullu húsi stiga. Lewis Hamilton vann og Nico Rosberg varð annar.

Hamilton kom fyrstur í mark á Spáni

Eftir spennandi keppni hafði Lewis Hamilton betur gegn liðsfélaga sínum hjá Mercedes, Nico Rosberg sem reyndi hvað hann gat en allt kom fyrir ekki. Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Lotus trúir að bíllinn henti í Mónakó

Lotus liðið stefnir á enn eitt framfarastökkið í viðbót í Mónakó um helgina. Eftir að Romain Grosjean náði í fyrstu stig liðsins á tímabilinu í Barcelona. Liðið er bjartsýnt á enn betri árangur í Mónakó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×