Lífið

Öflug handaæfing og hress útiæfing

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nú er komið að öðrum þætti af EA Fitness en fyrsti þátturinn var sýndur í síðustu viku og fékk gríðarlega góðar viðtökur.

Í þætti vikunnar fara Elma og Anton yfir öfluga handaæfingu, fara á hressa útiæfingu og Anton sýnir snilldartakta í eldhúsinu. Einnig er Einarshornið á sínum stað.

Elma Grettisdóttir er með menntun frá World Class-skólanum og í Stott Pilates. Hún hefur unnið sem einkaþjálfari í mörg ár og er þjálfunin ekki bara vinna fyrir henni heldur einnig áhugamál. Hún býður uppá einkaþjálfun í World Class sem og fjarþjálfun.  

Anton Rúnarsson hefur unnið sem einka- og fjarþjálfari í meira en tíu ár. „Að aðstoða fólk við að koma sér í form og læra að halda sér í formi er það sem ég geri, megrun er ekki í mínum orðaforða heldur lífsstíll. Að endurstilla hugarfarið til að lifa heilbrigðum lífsstíl,“ segir Anton. Hann er menntaður einkaþjálfari frá World Class-skólanum.

Þriðji þáttur verður sýndur næsta mánudag.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.