James Hurst leystur undan samningi hjá Val Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. júlí 2014 15:41 James Hurst heldur heim til Englands. vísir/daníel
Enski bakvörðurinn James Hurst spilar ekki fleiri leiki með Val í Pepsi-deild karla í fótbolta, en samningi hans við félagið hefur verið rift. Þetta staðfestir MagnúsGylfason, þjálfari Vals, í samtali við Vísi. „Það var samkomulag um riftun. Félagslegi þátturinn var bara ekki í lagi hjá honum. Hann vildi ekkert síður sjálfur losna og fara heim,“ segir Magnús við Vísi. Athygli vakti fyrr í sumar þegar Hurst meiddist í leik með Valsmönnum. Sást lítið til Valsmannsins næstu daga á eftir og kunnu liðsfélagar hans engin deili á hvar hann væri að finna. Það var svo þegar Englendingurinn birti myndir af sér á samfélagsmiðlum í gleðskap í Dubai sem ljóst var hvar hann var niðurkominn. „Ég sé á eftir honum fótboltalega séð. Hann er frábær leikmaður og allt í toppmálum þar, en félagslegi þátturinn var ekki í lagi og þá var ekki hægt að halda þessu samstarfi áfram,“ segir Magnús Gylfason. Samkvæmt heimildum Vísis mætti Hurst ekki á æfingu hjá Valsmönnum á þriðjudaginn. Leikmaður Vals staðfesti við Vísi að það hefði líklega verði dropinn sem fyllti mælinn. James Hurst spilaði sjö deildarleiki með Val á tímabilinu og tvo í bikarnum, en hann var einnig á mála hjá liðinu í fyrra og spilaði þá sjö deildarleiki og skoraði eitt mark. Hann kom fyrst til Íslands og sló í gegn með ÍBV sumarið 2010 en þá spilaði hann 16 leiki í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Körfubolti Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Fótbolti Auglýsa leik kvöldsins með minnsta skilti sem fyrirfinnst Körfubolti Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Enski boltinn Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi Körfubolti Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Formúla 1 Fleiri fréttir Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig Sjá meira