Golf

Útilokar ekki að velja Tiger í Ryder-liðið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tiger Woods fékk tak í bakið eftir þetta högg á annarri braut á Firestone-vellinum.
Tiger Woods fékk tak í bakið eftir þetta högg á annarri braut á Firestone-vellinum. vísir/getty
Tom Watson, fimmfaldur sigurvegari á opna breska meistaramótinu og fyrirliði Ryder-liðs Bandaríkjanna í ár, segir að meiðsli Tigers Woods um helgina boði ekki gott fyrir Ryder-bikarinn í ár.

Keppnin fer fram á Gleneagles-vellinum í Skotlandi í lok september, og er nú orðið ansi tæpt að Tiger Woods verði á meðal keppenda.

Tiger er langt frá því að komast í liðið á stigum, en hann er í 69. sæti á stigalista bandaríska liðsins. Níu efstu komast sjálfkrafa í liðið en Tom Watson velur svo þrjá sem fyrirliði.

„Ég vel Tiger ef hann er heill og að spila vel. Þetta lítur ekki vel út núna,“ segir Watson, en Tiger hætti leik á lokadegi WCG Bridgestone-mótsins á sunnudaginn vegna meiðsla.

Tiger meiddist á ný í baki eftir erfitt högg á annarri braut og var sársaukinn að gera út af við hann á níundu braut. Þar haltraði hann af velli og var keyrður á golfbíl út á bílastæði.

PGA-meistaramótið hefst á fimmtudaginn og vonast Watson til þess að Tiger verði með þar. „Vonandi eru meiðslin ekki alvarleg þannig hann geti spilað á PGA-meistaramótinu,“ segir Tom Watson.

Tiger hætti við blaðamannafund í dag þar sem talið var að hann ætlaði að upplýsa hvort hann yrði með á Valhalla-vellinum um helgina.

Umboðsmaður hans sagði svo í sms-skilaboðum til blaðamanns ESPN að of snemmt væri að segja hvort hann verður með eða ekki. Það ræðst væntanlega á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×