Sport

Dalton fær 13 milljarða næstu sex árin hjá Bengals

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Andy Dalton verður áfram hjá Bengals.
Andy Dalton verður áfram hjá Bengals. vísir/getty
Andy Dalton, leikstjórnandi Cincinnati Bengals í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, mun eiga fyrir salti í grautinn næstu árin, en hann fékk nýjan risasamning hjá félaginu í dag.

Bengals gerði sex ára samning við Dalton sem tryggir honum 115 milljónir dala í laun eða jafnvirði 13 milljarða íslenskra króna. Hann fær 22 milljónr dala (2,5 milljarði króna) á fyrstu sex mánuðum samningsins.

Dalton átti eitt ár eftir af nýliðasamningnum sínum og hefði ekki þénað „nema“ 1,7 milljónir dala eða 200 milljónir króna á næsta tímabili.

Leikstjórnandinn sagði ESPN.com í dag að umboðsmaður hans hefði sagt honum frá samningnum í gærkvöldi, en hann áttaði sig ekki almennilega á stærð hans fyrr en eftir æfingu í morgun.

„Fyrir utan peningana, þá er ég ánægður að fá að vera hérna áfram með minni fjölskyldu. Við erum að reyna að búa okkur til heimili hérna sem er mikilvægt,“ sagði Dalton við ESPN eftir æfinguna.

Andy Dalton er einn af betri leikstjórnendum NFL-deildarinnar, en hann hefur komið Cincinnati Bengals í úrslitakeppnina öll þrjú árin sín í deildinni. Þar hefur hann reyndar tapað í fyrsta leik í öll þrjú skiptin.

Dalton hefur bætt sig á hverju ári og ekki að ástæðulausu að hann fær svona stóran samning. Hann hefur bætt sig í heppnuðum sendingum og snertimörkum á hverju ári hingað til.

Bengals er líkt og í fyrra líklegt til að vinna norðurriðil AFC-deildarinnar og komast í úrslitakeppnina á ný þar sem vonast er til að Dalton vinni sinn fyrsta leik í úrslitakeppninni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×