Tónlist

58 ár frá fyrstu Eurovision-keppninni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Conchita Wurst.
Conchita Wurst.
Fyrsta Eurovision-söngvakeppnin var haldin á þessum degi í Lugano í Sviss. Eins og flestir Íslendingar vita er þetta árleg keppni þar sem Evrópulöndin keppa um hvaða land á besta lagið.

Keppninni hefur verið sjónvarpað allt frá árinu 1956 og er einn af langlífustu sjónvarpsþáttum heims. Þá er þetta einnig sá viðburður sem hvað mest áhorf er á í heiminum ef íþróttaviðburðir eru ekki teknir með inn í jöfnuna. Talið er að eitthvað á milli hundrað til sex hundruð milljónir manna horfi á keppnina árlega sem er ekki aðeins sjónvarpað til Evrópulandanna heldur einnig til Ástralíu, Kanada, Egyptalands, Indlands, Taílands og Bandaríkjanna svo dæmi séu nefnd. Keppninni hefur einnig verið sjónvarpað á netinu síðan árið 2000 á heimasíðu Eurovision.

Fjölmargir listamenn hafa hlotið frægð á alþjóðavettvangi eftir þátttöku í keppninni, þar á meðal sænska sveitin ABBA, kanadíska stórsöngkonan Céline Dion og spænski sjarmörinn Julio Iglesias.

Íslendingar hafa tekið þátt í Eurovision síðan árið 1986 þegar ICY-flokkurinn flutti lagið Gleðibankinn í Björgvin í Noregi. Flokkurinn lenti í 16. sæti eins og framlögin tvö sem komu í kjölfarið og því hefur talan 16 fylgt Íslendingum síðan. Ísland hefur best náð öðru sæti í keppninni, fyrst þegar Selma tók þátt árið 1999 með lagið All Out of Luck þegar hin sænska Charlotte Nilsson bar sigur úr býtum og síðan árið 2009 þegar Jóhanna Guðrún flutti lagið Is It True en hinn norski Alexander Rybak fór með sigur af hólmi.

Austurríska draggdrottningin Conchita Wurst sigraði í Eurovision í ár með lagið Rise Like a Phoenix en framlag Íslands, No Prejudice með Pollapönki, lenti í 15. sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.