Íslenski boltinn

Gaupi hitaði upp með KR og Keflavík í Frostaskjóli

Tómas Þór Þórðarson skrifar
KR og Keflavík mætast í úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu í dag á Laugardalsvelli klukkan 16.00.

Sömu lið mættust í Pepsi-deildinni á mánudaginn, en þar hafði KR sigur, 2-0, í áhugaverðum leik.

Guðjón Guðmundsson fór á leikinn og hitaði upp fyrir bikarúrslitin með stuðningsmönnum beggja liða, leikmönnum og fleirum.

Þetta bráðskemmtilega innslag má sjá í spilaranum hér að ofan.

Bikarúrslitaleikur KR og Keflavíkur er í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og hér á Vísi. Upphitun hófst klukkan 15.00. Hann er einnig í beinni textalýsingu á Vísi sem má finna hér.


Tengdar fréttir

Hver man hvað gerðist fyrir 50 árum?

Guðjón Guðmundsson ræddi við tvær kempur úr Keflavík og KR sem urðu meistarar 1964, en liðin mætast í úrslitum Borgunarbikarsins í dag.

Pressan er á Íslandsmeisturunum

KR og Keflavík mætast í 54. úrslitaleik bikarkeppni KSÍ en í báðum liðum eru leikmenn sem búa yfir mikilli reynslu af bikarúrslitaleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×