Veglínur sem Vegagerðin vill meta í Gufudalssveit Kristján Már Unnarsson skrifar 26. ágúst 2014 12:45 Ný veglína um Teigsskóg er merkt leið Þ-H. Kort/Vegagerðin.
Ný veglína um Teigsskóg er meðal valkosta í nýrri matsáætlun sem Vegagerðin hefur sent Skipulagstofnun til formlegrar ákvörðunar vegna framtíðarlegu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, milli Bjarkalundar og Melaness. Lagt er til að fjórar aðrar leiðir verði einnig metnar. Skipulagsstofnun hafnaði því óformlega fyrr á árinu að ný veglína um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat á þeirri forsendu að þegar væri búið að hafna framkvæmdinni. Vegagerðin vill hins vegar fá þá afstöðu fram með formlegum hætti, sem gefur færi á að kæra niðurstöðuna til æðra stjórnvalds. Núverandi vegur er 41,6 km langur en nýr vegur verður 19,7-21,7 km langur, háð leiðarvali, að því er fram kemur í kynningu Vegagerðarinnar. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á sunnanverðum Vestfjörðum.Húsmæður á Vestfjörðum mótmæltu með búsáhöldum á frægum fundi á Patreksfirði haustið 2011 þeirri stefnumörkun Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi innanríkisráðherra, að hafna láglendisleið um Teigsskóg.Mynd/Egill Aðalsteinsson.Umhverfisáhrif viðkomandi vegarkafla hafa áður verið metin, það er á árunum 2005-2009. Skipulagsstofnun lagðist þá gegn vegalagningu um Teigsskóg en Jónína Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, sneri við þeirri ákvörðun. Hæstiréttur felldi í október 2009 þann úrskurð ráðherra úr gildi og síðan hefur málið verið í óvissu. Sumarið og haustið 2011 hélt Ögmundur Jónasson, þáverandi innanríkisráðherra, fundi með hagsmunaaðilum. Á fundunum kom fram að íbúar á Vestfjörðum væru almennt sammála um að nýjan veg ætti að leggja á láglendi. Ögmundur hafnaði því hins vegar að ný veglína um Teigsskóg færu í umhverfismat. Hörð og rökstudd viðbrögð við þeirri ákvörðun Ögmundar bárust frá ýmsum aðilum, segir á heimasíðu Vegagerðarinnar. „Því hefur Vegagerðin í samráði við innanríkisráðherra ákveðið að leggja fram nýja veglínu Þ-H, sem er breytt lega um Teigsskóg,“ en núverandi innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjándóttir, ákvað í fyrra að snúa við ákvörðun Ögmundar.Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra skoðuðu Teigsskóg í fyrrasumar.Fréttablaðið/DaníelÁ meðfylgjandi korti sjást einnig aðrar leiðir sem Vegagerðin vill meta. Tvær leiðir, D2 og H, sem liggja í jarðgöngum undir Hjallaháls. Leið I, sem þverar Þorskafjörð utan við Teigsskóg og liggur um Þorskafjörð að austanverðu. Leið A1, sem þverar Þorskafjörð utar, milli Skálaness og Reykjaness og liggur svo inn með Þorskafirði að austanverðu. Í tengslum við leiðir A1 og I þarf að leggja tengingu í átt að Reykhólum. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sagði í viðtali við Stöð 2 fyrr í sumar að það væri mat Vegagerðarinnar að leið um Teigsskóg væri langbesta og öruggasta vegtengingin. Sú leið væri auk þess þremur milljörðum króna ódýrari en næsti kostur.Leið Þ-H um Teigsskóg í samanburði við leið B og leið B1, sem Vegagerðin hafði áður kynnt.Kort/Vegagerðin.
Tengdar fréttir Er hlynnt vegi um Teigsskóg "Ég er hlynnt því að leggja veginn hér,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra þegar hún skoðaði sig um í Teigsskógi síðdegis í gær á leið sinni til fundar við Vestfirðinga um samgöngumál. 21. júní 2013 09:00 Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg. 20. september 2011 13:03 Telur breyttan veg ekki leyfa nýtt umhverfismat Framtíðarlega Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í algerri óvissu eftir að Skipulagsstofnun gerði Vegagerðinni ljóst að hún myndi ekki fallast á að vegur um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat með breyttri veglínu. 25. júní 2014 20:00 Vilja lagafrumvarp um Teigsskógarveg Bæjarráð Vesturbyggðar segir að samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum þoli ekki frekari tafir á vegaframkvæmdum. 30. júní 2014 17:00 Telur skaða vegna nýs Vestfjarðavegar óbætanlegan Stærsta verkið sem Vegagerðin hugðist ráðast í á næsta ári, þverun tveggja fjarða á sunnanverðum Vestfjörðum, fær afar neikvæða umsögn Skipulagsstofnunar, sem telur að ekki séu til mótvægisaðgerðir til að bæta fyrir eða koma í veg fyrir skaða vegna framkvæmdanna. 6. desember 2011 11:44 Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56 Leið um Teigsskóg reynd til þrautar Vegagerðin hefur ákveðið að láta reyna til þrautar að koma vegi um Teigsskóg í gegnum skipulagsferli. 7. júlí 2014 19:45 Spyr hvort fuglar verði teknir fram yfir fólk á Vestfjörðum Á að taka tré og fugla fram yfir lífsmöguleika byggðarinnar á Vestfjörðum? Þessari spurningu varpaði prófessor á Akureyri fram í dag inn í tuttugu manna nefnd sem vinnur að sátt um framtíðarlegu vegarins um sunnanverða Vestfirði. Ráðamenn á Vestfjörðum vilja að leiðin um Barðastrandarsýslur verði stytt um rúma tuttugu kílómetra með því að þvera Djúpafjörð og Gufufjörð og losna um leið við tvo erfiða hálsa, Hjallaháls og Ódrjúgsháls. 29. ágúst 2011 19:13 Hanna Birna til fundar við Vestfirðinga um vegamál Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hefur fallist á að funda með Vestfirðingum um hvort Vestfjarðavegur verði lagður um Teigsskóg, og að snúið verði við synjun Ögmundar Jónassonar. 17. júní 2013 21:14 Mest lesið Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Innlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Innlent Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Innlent Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag Innlent Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Fleiri fréttir Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Sjá meira
Er hlynnt vegi um Teigsskóg "Ég er hlynnt því að leggja veginn hér,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra þegar hún skoðaði sig um í Teigsskógi síðdegis í gær á leið sinni til fundar við Vestfirðinga um samgöngumál. 21. júní 2013 09:00
Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg. 20. september 2011 13:03
Telur breyttan veg ekki leyfa nýtt umhverfismat Framtíðarlega Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í algerri óvissu eftir að Skipulagsstofnun gerði Vegagerðinni ljóst að hún myndi ekki fallast á að vegur um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat með breyttri veglínu. 25. júní 2014 20:00
Vilja lagafrumvarp um Teigsskógarveg Bæjarráð Vesturbyggðar segir að samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum þoli ekki frekari tafir á vegaframkvæmdum. 30. júní 2014 17:00
Telur skaða vegna nýs Vestfjarðavegar óbætanlegan Stærsta verkið sem Vegagerðin hugðist ráðast í á næsta ári, þverun tveggja fjarða á sunnanverðum Vestfjörðum, fær afar neikvæða umsögn Skipulagsstofnunar, sem telur að ekki séu til mótvægisaðgerðir til að bæta fyrir eða koma í veg fyrir skaða vegna framkvæmdanna. 6. desember 2011 11:44
Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56
Leið um Teigsskóg reynd til þrautar Vegagerðin hefur ákveðið að láta reyna til þrautar að koma vegi um Teigsskóg í gegnum skipulagsferli. 7. júlí 2014 19:45
Spyr hvort fuglar verði teknir fram yfir fólk á Vestfjörðum Á að taka tré og fugla fram yfir lífsmöguleika byggðarinnar á Vestfjörðum? Þessari spurningu varpaði prófessor á Akureyri fram í dag inn í tuttugu manna nefnd sem vinnur að sátt um framtíðarlegu vegarins um sunnanverða Vestfirði. Ráðamenn á Vestfjörðum vilja að leiðin um Barðastrandarsýslur verði stytt um rúma tuttugu kílómetra með því að þvera Djúpafjörð og Gufufjörð og losna um leið við tvo erfiða hálsa, Hjallaháls og Ódrjúgsháls. 29. ágúst 2011 19:13
Hanna Birna til fundar við Vestfirðinga um vegamál Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hefur fallist á að funda með Vestfirðingum um hvort Vestfjarðavegur verði lagður um Teigsskóg, og að snúið verði við synjun Ögmundar Jónassonar. 17. júní 2013 21:14