Viðskipti innlent

100 ára afmæli kosningarétts kvenna kostar 104 milljónir

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Þessi mynd var tekin á Kvenréttindadeginum, þann 19. júní árið 2011, þegar blómsveigur var lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
Þessi mynd var tekin á Kvenréttindadeginum, þann 19. júní árið 2011, þegar blómsveigur var lagður á leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
Gert er ráð fyrir 60 milljón króna framlagi til hátíðarhalda vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi á næsta ári. Af sama tilefni var gert ráð fyrir 44 milljón króna útgjöldum vegna undirbúnings hátíðarhaldanna á fjárlögum yfirstandandi árs og er því alls gert ráð fyrir að 104 milljónir króna fari í að halda upp á að 100 ár eru síðan konur fengu kosningarétt.

Í fjárlögum næsta árs segir:

Óskað er eftir 60 m.kr. framlagi á þennan lið en það jafngildir 16 m.kr. hækkun að raungildi frá fjárlögum yfirstandandi árs. Breytingarnar eru tvær. Niður fellur 44 m.kr. tímabundið framlag sem veitt var í fjárlögum 2014 til undirbúnings fyrir 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Á móti er sótt um 60 m.kr. tímabundið framlag í eitt ár vegna fyrirhugaðra hátíðarhalda í tilefni þess að þann 19. júní 2015 verða 100 ár frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.

Á vef Kvennasögusafnsins segir um kosningarétt kvenna:

„Þann 19. júní 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri langþráðan kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Baráttan hafði þá staðið yfir frá árinu 1885 en þá skrifaði Valdimar Ásmundsson grein um stjórnmálaréttindi kvenna í blað sitt Fjallkonuna og sömuleiðis Bríet Bjarnhéðinsdóttir, og Páll Briem hélt opinberan fyrirlestur um kosningarétt og önnur réttindi kvenna.

Árið 1894 var stofnað í Reykjavík Hið íslenska kvenfélag og hafði það jafnrétti kynjanna og þátttöku kvenna í opinberum málum á stefnuskrá sinni. Félagið safnaði 2000 undirskriftum með áskorun til Alþingis um að veita konum kosningarétt árið 1895. Þetta var fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna sem skipulögð samtök kvenna lögðu fram.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×