Fótbolti

Kristján Gauti hélt lífi í EM-draumi drengjanna

Kristján Gauti á ferðinni í fyrri leik liðanna.
Kristján Gauti á ferðinni í fyrri leik liðanna. vísir/arnþór
Íslenska U-21 árs landsliðið á enn möguleika á því að komast á EM eftir að hafa nælt í frábært 1-1 jafntefli í Frakklandi í kvöld.

Yaya Sanogo, leikmaður Arsenal, kom Frökkum yfir á 63. mínútu en Kristján Gauti Emilsson jafnaði leikinn tíu mínútum fyrir leikslok.

Markið með skalla eftir hornspyrnu Guðmundar Þórarinssonar.

Þetta stig þýðir að Ísland á góða möguleika á því að komast í umspil um laust sæti á EM en það skýrist endanlega annað kvöld þegar riðlakeppninni lýkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×